Fara í efni

54. fundur í skipulags- og umhverfisnefnd

30.09.2026 14:00

Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd

54. fundur skipulags- og umhverfisnefndar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, miðvikudaginn 30. september 2026. Fundur var settur kl. 14:00.

Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Vikar Már Vífilsson, Þorri Friðriksson, Christina Merkel og Þorsteinn Vilberg.

Nefndin byrjaði að sitja vinnustofu með Landslagi frá 12:30 – 14:00

Fundargerð

1. Endurskoðun aðalskipulags Langanesbyggðar 2026-2038 – kynning á skipulagslýsingu og komandi vinnu við skipulagið.
Atli og Karítas frá Landslagi komu og kynntu verkefnið fyrir skipulagsnefnd og sveitarstjórn.

2. Skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum - erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands

Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar erindið og mun hafa þetta til hliðsjónar í verðandi aðalskipulagsvinnu

Samþykkt samhljóða.

3. Umsókn um leyfi til uppsetningar geymslutjalds á iðnaðarsvæði

B.j. vinnuvélar óskar eftir

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og óskar eftir frekari gögnum frá umsækjanda samkvæmt svörum frá byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa.

Samþykkt samhljóða

5. Beiðni Árna Davíðs Haraldssonar um breytingu á staðfangi

Fyrir liggur erindi eiganda bæjarins Gunnarsstaðir 2 lóð fasteignanúmer F2167422 þar sem óskað er eftir að heiti jarðarinnar verði leiðrétt í Gunnarsstaðir 2, sem mun vera rétt nafn jarðarinnar.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að heitið Gunnarsstaðir 2 lóð verði leiðrétt í Gunnarsstaðir 2 enda sé um leiðréttingu á eldri misskráningu að ræða. Byggingarfulltrúa er falið að annast nauðsynlegar breytingar á staðfangi og fasteignaheiti í fasteignaskrá og öðrum viðeigandi skrám.

Bókun um afgreiðslu: Samþykkt samhljóða.

6. Önnur mál
Vegna anna í næstu viku var þessum fundi flýtt um viku og því ekki um reglubundinn fund að ræða í komandi viku.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 15:45

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?