Fara í efni

53. fundur skipulags- og umhverfisnefndar

09.09.2026 14:00

Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd

53. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, miðvikudaginn 9. september 2026. Fundur var settur kl. 14:00.
Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Vikar Már Vífilsson, Þorri Friðriksson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Fundargerð

1. Upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033
Áður á dagskrá 52. fundar en var frestað til 53. fundar.
Tekið fyrir erindi Umhverfis- og orkustofnunar þar sem óskað er eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem líklega kalla á að sótt verði um heimildir til að breyta vatnshloti skv. 18. gr. laga um um stjórn vatnamála, í tengslum við endurskoðun vatnaáætlunar. Skilafrestur gagna er til 30. september 2026.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra er falið skila þeim gögnum sem Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir.

Samþykkt samhljóða.

2. Umsókn um lóð – Langanesvegur 19b
Tvær umsóknir liggja fyrir um lóðina að Langanesveg 19b. Önnur umsóknin er frá Dawid Potrykus fyrir parhús og hin frá Þorsteini Vilberg fyrir einbýli.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsaðila að gera viðeigandi breytingar á deiliskipulagi samkvæmt umsóknum. Þorsteinn Vilberg fær Langanesveg 19a og Dawid Potrykus Langanesveg 17b og 19b.

Samþykkt samhljóða.

3. Erindi UMFL um framtíð motocrossbrautar
Tekið fyrir erindi Ungmennafélags Langnesinga þar sem þess er óskað að skipulags- og umhverfisnefnd taki til umfjöllunar framtíð motocrossbrautar sem staðsett er austan við steypustöð og malarnámu í landi (ath. nánari staðsetningu). UMFL hefur áhuga á að lagfæra brautina og gera hana nothæfa að nýju.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd telur núverandi staðsetningu Motocross brautarinnar ekki heppilega og óskar eftir tillögum að öðru svæði. Einnig er áætlaður eru íbúafundir í vetur í tengslum við gerð Aðalskipulags Langanesbyggðar þar sem framtíðar staðsetning myndi vera á dagskrá.

Samþykkt samhljóða.

4. Staðárvirkjun í Bakkafirði - Deiliskipulag
Vinnslutillaga að breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar og tillaga að nýju deiliskipulagi vegna Staðarárvirkjunar í Bakkafirði hafa verið kynntar í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Skipulagsnefnd hefur farið yfir framkomnar umsagnir og athugasemdir og telur að brugðist hafi verið við þeim með fullnægjandi hætti í fyrirliggjandi tillögum. Meðfylgjandi er greinagerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulags og greinargerð og breytingauppdráttur aðalskipulags dagsett 14. ágúst 2026.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögurnar og leggur til við sveitarstjórn að tillaga að aðalskipulagsbreytingu verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til athugunar og að því loknu auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga. Jafnframt leggur nefndin til að tillaga að nýju deiliskipulagi verði auglýst samhliða samkvæmt 41. gr. laganna

Samþykkt samhljóða.

5. Erindi varðandi leiðréttingu á bæjarheiti í fasteignaskrá
Fyrir liggur erindi eiganda bæjarins Holt og Laxárdalur, fasteignanúmer F2167446, þar sem óskað er eftir að heiti jarðarinnar verði leiðrétt í Holt, sem mun vera rétt nafn jarðarinnar.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að heitinu Holt og Laxárdalur verði leiðrétt í Holt enda sé um leiðréttingu á eldri misskráningu að ræða. Byggingarfulltrúa er falið að annast nauðsynlegar breytingar á staðfangi og fasteignaheiti í fasteignaskrá og öðrum viðeigandi skrám.

Samþykkt samhljóða.

6. Erindi Vegagerðarinnar um samgöngur og skipulag

Erindi Vegagerðarinnar um samgöngur og skipulag er lagt fram til kynningar. Nefndin þakkar erindið og tekur undir mikilvægi góðs samráðs við Vegagerðina við gerð og endurskoðun skipulagsáætlana sveitarfélagsins. Skipulagsfulltrúa er falið að hafa framkomnar ábendingar til hliðsjónar við áframhaldandi skipulagsvinnu.

7. Önnur mál

7.1 Bergholt 1 – frágangur lóðar
Eigandi Bergholts lagði fram tillögur að frágangi lóðamarka.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir að eigandi gangi frá lóðamörkum samkvæmt tillögu á sinn kostnað.

Samþykkt samhljóða.


Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 15:22.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?