52. fundur skipulags- og umhverfisnefndar
Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd
52. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 þriðjudaginn 11. ágúst 2026. Fundur var settur kl. 14:00.
Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Vikar Már Vífilsson, Þorri Friðriksson, Christina Elisabeth Merkel og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.
Formaður bar undir nefndina tillögu um afbrigði til að taka 3. lið af dagskrá þar.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð
1. Tunguárvirkjun í Þistilfirði
Lögð fram tillaga frá verkfræðistofunni Verkís f.h. Tunguárvirkjun ehf. að deiliskipulagi ásamt breytingu á aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir að reisa vatnsaflsvirkjun í Tunguá í Þistilfirði með áætlað uppsett afl allt að 2,1 MW og árlega orkuframleiðslu upp á allt að 12 GWst. Virkjunin verður tengd við dreifikerfi Rarik.
Meðfylgjandi er greinagerð deiliskipulags og skipulagsuppdráttur dags. 9. júní 2026 og greinargerð og breytingaruppdráttur aðalskipulags dags. 9. júní 2026.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir að auglýsa tillögurnar í samræmi við 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsráðgjafa Langanesbyggðar að óska eftir leyfi HMS skv. 3.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að auglýsa breytingu á aðalskipulagi áður en tillögurnar verða auglýstar saman.
Samþykkt samhljóða.
2. Aðalskipulag Langanesbyggðar 2026-2040 – drög að skipulagslýsingu
Lögð fram drög að skipulagslýsingu vegna vinnu við Aðalskipulag Langanesbyggðar 2026-2040.
Lagt fram til kynningar.
3. Breytt deiliskipulag – Miðholt 20-26
Afgreitt mál, tekið af dagskrá.
4. Aðaluppdráttur - Miðholt 20-26
Gögn lögð fram.
Bókun um afgreiðslu: Skrifstofustjóra falið að senda gögn til byggingafulltrúa Langanesbyggðar.
Samþykkt
5. Drög að breytingum á reglugerðum á sviði hollustuhátta og mengunarvarna
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingum á ýmsum reglugerðum á sviði hollustuhátta og mengunarvarna í kjölfar nýsamþykktra laga um einföldun eftirlits. Umsagnarfrestur er til 17. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin gerir athugasemdir við stuttan umsagnarfrest þar sem auglýsingartíminn lendir í sumarfríi nefnda og ráða. Óskum eftir framlengdum fresti til að skila inn umsögn.
Samþykkt samhljóða.
6. Upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033
Lagt fram til kynningar.
Bókun um afgreiðslu: Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Skilafrestur ganga er til 30. september 2026.
Samþykkt samhljóða.
7. Umsókn um lóð – Langanesvegur 19b
Þorsteinn Vilberg óskar eftir varanlegri staðsetningu.
Bókun um afgreiðslu: Vegna athugasemda sem bárust vegna eignaheimilda er málinu frestað til næsta fundar.
Samþykkt samhljóða.
8. Ástand gönguleiðar og vegar að Rauðanesi – innsend fyrirspurn
Sveitarfélaginu barst ábending um slæmt ástand vegar og gönguleiðar.
Bókun um afgreiðslu: Afleggjarinn að Völlum er ekki á vegaskrá og því ekki sjálfgefið að fá hann heflaðan. Rauðanes er í landi Sævarlands og sveitarfélagið ekki með umboð til framkvæmda þar.
Samþykkt samhljóða.
9. Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar 2026-2030 – drög
Lagt fram til kynningar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin gerir engar athugasemdir við erindisbréf og samþykkir. fyrir sitt leyti. Nefndin áætlar fastan fundartíma á miðvikudögum kl. 14:00 í nefndarvikum.
Samþykkt samhljóða.
10. Erindi frá Samtökum um dýravelferð á Íslandi
Samtök um dýravelferð vilja koma á framfæri hvatningu til íslenskra sveitarfélaga um að skoða þá leið sem Norðurþing hefur nú farið með því að banna loðdýrarækt innan sveitarfélagsins í aðalskipulagi.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar erindið og hefur það til hliðsjónar við aðalskipulagsvinnu.
Samþykkt samhljóða.
11. Önnur mál
11.1. Frágangur á uppfyllingu við suðurgarð
Nefndin ítrekar mikilvægi þess að klára frágang á svæði við suðurgarð þar sem steypubrot og annar óvirkur úrgangur var jarðaður.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 15:50.