51. fundur skipulags- og umhverfisnefndar
Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd
52. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn að Grásteini í Holti þriðjudaginn 5 maí 2026. Fundur var settur kl. 17:00.
Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Þorsteinn Vilberg Þórisson, Ina Leverköhne, Þorri Friðriksson og Sigtryggur Brynjar Þorláksson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.
Formaður bar undir nefndina tillögu um afbrigði til að taka á dagskrá 6. lið sem er umsókn um lóðina Fjarðarvegur 21.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð
1. Fundargerð 247 fundar heilbrigðisnefndar NE frá 15.04.2026
Fundargerðin lögð fram.
2. Ályktun fulltrúaráðsfundar Skógræktarfélags Íslands frá 28.03.2026
Bréf Skógræktarfélags Íslands lagt fram.
3. Umsókn um lóðirnar Langanesveg 17 b og 19 b frá Dawid smið
03.1 Teikning Langanesvegur 17 b og 19 b – parhús.
03.2 Mynd af hæð 1.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin hefur farið yfir erindi umsækjanda og bendir á að fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Að mati nefndarinnar myndi þurfa að gera nýtt deiliskipulag á svæðinu til þess að unnt væri að taka erindið til jákvæðrar afgreiðslu. Nefndin bendir umsækjanda á lóðirnar Sunnuveg 13, 16 eða 18 sem myndu falla betur undir fyrirhuguð byggingaráform.
Samþykkt samhljóða.
4. Ákvörðun HMS um mat á umhverfisáhrifum tilraunaverkefnis wpd
Ákvörðun HMS lögð fram til kynningar.
5. Ósk um framkvæmdaleyfi í Miðfjarðarnesseli
05.1 Ákvörðum HMS um matsskyldu.
05.2 Miðfjarðarnessel forleifaskráning 2025.
05.3 Svör við umsögnum til ákvörðunar um matsskyldu Miðfjarðarnessels.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfið, byggt á ákvörðun HMS um að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum og felur sveitarstjóra að gefa út leyfið.
Samþykkt samhljóða.
6. Umsókn um lóðina Fjarðarvegur 21
Þorsteinn Vilberg Þórisson sækir um lóðina að Fjarðarvegi 21.
Við afgreiðslu málsins yfirgaf Þorsteinn Vilberg Þórisson fundinn.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir úthlutun lóðarinnar að því tilskyldu að skilað verði inn teikningum af fyrirhuguðu húsi sem er í samræmi við deiliskipulag.
Samþykkt samhljóða.
7. Önnur mál
Formaður þakkar nefndarmönnum fyrir gott samstarf og samvinnu á kjörtímabilinu.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 17:45.