49. fundur skipulags- og umhverfisnefndar
Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd
49. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 10. mars 2026. Fundur var settur kl. 14:00
Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Þorsteinn Vilberg Þórisson, Ina Leverköhne, Þorri Friðriksson, Sigtryggur Brynjar Þorláksson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.
Óskað er efir að afbrigðum til að taka fyrir undir „önnur mál“ áskorun til sveitarfélaga um verndun strandlengju.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð
1. Drög að samningi við Landslag um gerð aðalskipulags.
01.1 Bókun sveitarstjórnar um gerð aðalskipulags.
Fyrir liggja drög að samningi við Landslag um gerð aðalskipulags fyrir Langanesbyggð 2027-2042 með tímaáætlun og kostnaðaráætlun. Sveitarstjórn samþykkti á 55. fundi að fela sveitarstjóra í samvinnu við umhverfis- og skipulagsnefnd og skipulagsráðgjafa að ganga til samninga við Landslag um gerð aðalskipulagsins.
Bókun um afgreiðslu: Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir meðfylgjandi samning og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Langanesbyggðar.
Samþykkt samhljóða.
2. Stækkun slökkvistöðvar – óskað eftir áliti nefndarinnar
02.1 Lóðateikning.
Slökkviliðsstjóri hefur lagt fram meðfylgjandi tillögu að stækkun slökkvistöðvar til að koma fyrir þeim búnaði sem ekki rúmast innan núverandi húsnæðis.
Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í tillögu slökkviliðsstjóra og felur skipulagsráðgjafa að útfæra hana frekar í samvinnu við slökkviliðsstjóra m.t.t. gildandi deiliskipulags.
Samþykkt samhljóða.
3. Deiliskipulag Pálmholt / Langholt – tillaga að húsi Bjsv. Hafliða.
Björgunvarsveitin Hafliði hefur lagt fram tillögu um byggingu björgunarsveitarhúss á reit við Langholt sem sýndur er á meðfylgjandi rissi af svæðinu.
Bókun um afgreiðslu: Ekkert deiliskipulag er til af þessu svæði sem um ræðir. Nefndin óskar eftir því við skipulagsráðgjafa að gerð verði drög að deiliskipulagi fyrir svæðið sem gerir ráð fyrir húsi björgunarsveitarinnar og byggingareitum fyrir íbúðarhús við Pálmholt. Svæðið verði skilgreint sem þjónustu- og íbúðarsvæði.
Samþykkt samhljóða.
4. Drög að samkomulagi vegna strenglagningar á milli Vopnafjarðar og Þórshafnar.
04. 1 Kort af strengjaleið.
RARIK hefur sent meðfylgjandi drög að samkomulagi um lagningu strengs á milli Vopnafjarðar og Þórshafnar. Samkomulagið á við um lagnaleið í landi Langanesbyggðar og jörð(um) sem Langanesbyggð á.
Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við lagningu rafstrengs á milli Vopnafjarðar og Þórshafnar í landi Langanesbyggðar eða á jörð(um) sem eru í eigu Langanesbyggðar og felur sveitarstjóra að undirrita meðfylgjandi samkomulag.
Samþykkt samhljóða.
5. Ósk um niðurrif á C hluta byggingar Grunnskólans á Þórshöfn ásamt því að fjarlægja byggingu D.
Faglausn, f.h. Langanesbyggðar óskar eftir að fá að rífa byggingu C hluta skólahúsnæðis sem merkt er á meðfylgjandi teikningu ásamt því að fjarlægja byggingu D (syðsta hluta skólans). Meðfylgjandi eru einnig verkáætlanir. Málið hefur verið sent til byggingafulltrúa í gegn um gátt HMS.
Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti niðurrif á byggingahluta C samkvæmt meðfylgjandi teikningu og að fjarlægja byggingahluta D (syðsta hluta grunnskólans).
Samþykkt samhljóða.
6. Önnur mál.
a) Áskorun til sveitarfélaga um verndun strandlengjunnar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar erindið og mun hafa þetta til hliðsjónar við gerð nýs aðalskipulags.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 14:36.