Fara í efni

42. fundur umhverfis- og skipulagsnefndar

02.06.2025 16:00

Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd

42. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, mánudaginn 2. júní 2025. Fundur var settur kl. 16:00

Mættir voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Ina Leverköhne, Þorri Friðriksson, Sigtryggur Brynjar Þorláksson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.

Formaður fór fram á að tekin yrðu fyrir mál 10, 11og 12 og aukagögn sem bárust undir lið 6 með afbrigðum þar sem þau mál bárust ekki fyrir boðun fundar.

Samþykkt samhljóða

Fundargerð

1. Aðalskipulag Langanesbyggðar – stefnuyfirlýsing – tillaga í vinnslu
Tillaga að skipulagslýsingu nýs aðalskipulags Langanesbyggðar 2025-2037.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin gerir að tillögu sinni að sveitarstjórn fullvinni texta sem snýr að áherslum og framtíðarsýn þannig að skjalið verði að skipulagslýsingu vegna aðalskipulags. Eftirfarandi atriði vill nefndin bæta við áhersluatriði í kafla 2.3:

· Náttúra Sjálfbærni, endurnýtingu, sorpmál (förgun og flokkun).
· Búseta: Uppbygging og þétting byggðar skal taka mið af umhverfi og náttúrulegum aðstæðum. Ákvörðunarferli og stjórnsýsla skulu vera lýðræðisleg, gagnsæ og taka mið af sjónarmiðum íbúa. Áhersla á samþætt og fjölskylduvænt samfélag.
· Atvinna: Styrkja skal við fjölbreytni í atvinnulífinu.
· Samfélag: Fjölmenningasamfélag þar sem allir einstaklingar eru velkomnir og fá hvatningu til að taka virkan þátt.
· Grunnkerfi: Mikilvægt að viðhalda og uppfæra rafrænar tengingar. Auka orkuframleiðslu og aðgengi að orku.
Nefndin bendir á að svara þarf nokkrum spurningum sem koma fram í tillögunni.

Samþykkt samhljóða.

2. Umsókn um breytingu á gluggasetningu á Fjarðarvegi 11
Eigandi Fjarðarvegar 11 óskar eftir því að fá að breyta gluggasetningu á húsinu samkvæmt meðfylgjandi rissi.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir erindið og vísar því til byggingafulltrúa til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

3. Ósk um niðurrif á Kötlunesvegi 19 A
Kristinn V. Jónsson óskar eftir að fá að rísa Kötlunesveg 19A þar sem húsið er ónýtt. Kristinn fer fram á að sveitarfélagið komi til móts við sig varðandi förgun á húsinu sem gæti numið kr. 100.000.-

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir niðurrif hússins og að taka þátt í kostnaði við förgun á því sem til fellur.

Samþykkt samhljóða.

4. Tilkynning um aðildarskipti/sölu á jörð.
Kristín Heimisdóttir og Kristján Úlfarsson (kaupendur) tilkynna um aðildarskipti á jörðinni Sætún í Langanesbyggð (landeignanúmer L 154838 og fasteignanúmer F2168138). Tilkynningin er send sveitarfélaginu samkvæmt ákvæðum Jarðalaga.
Tilkynningin lögð fram.

5. Stikan – Teiknistofa. Byggingalýsing og afstöðumynd af sauðburðarhúsi í Holti.
     06.1 Grunnmynd – snið.
     06.2 Útlit byggingar
     06.3 Greinargerð aðalhönnuðar, Valraf ehf. Mannvirkjahönnun, raflagnahönnun, lýsingarhönnun.
Erindi frá Stikunni – Teiknistofu vegna byggingar á sauðburðarhúsi með ósk um byggingaleyfi.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd fellst fyrir sitt leyti á fyrirhugaða byggingu og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögnum hefur verið skilað inn.

Hildur lýsir vanhæfa við afgreiðslu málsins og víkur af fundi.

Samþykkt samhljóða.

6. Umsókn um lóð – Lækjarvegur 2
     06.1 Útlistteikningar af svipuðu húsi
     06.2 Útlit
     06.3 Grunnteikning
     06.4 Grunnteikning
     06.5 Snið
     06.6 Lækjarvegur 2 aðaluppdrættir
     06.7 Grenndarkynning vegna byggingarinnar.
Lögð fram umsókn um lóðina að Lækjarvegi 2 þar sem útlitsteikningar af eru innan ramma skipulags miðsvæðis.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd telur grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar byggingar fulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögnum hefur verið skilað inn.

Samþykkt samhljóða.

7. Erindi frá Vegagerðinni vegna breytingar á vegstæði.
     07.1 Veglína
Greinargerð frá Vegagerðinni:
Það hafa orðið smávægilegar breytingar á hönnun vegarins (Norðausturvegar) þar sem ráðgert er að hann liggi um land í eigu sveitarfélagsins. Þær breytingar, sem gerðar eru vegna fornminja á svæðinu, munu skila sér – þ.e. ef þær hafa ekki gert það nú þegar – inn í umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi.
Í viðhengi við þennan póst er nýr uppdráttur sem sýnir legu vegsvæðis skv. breyttri hönnun. Ég set einnig í þennan uppdrátt sem sýnir mun á legu vegsvæðisins eins og það lítur út í fasteignaskrá og hvernig breytt hönnun gerir ráð fyrir og skjáskot úr fasteignaskrá sem e.t.v. er skýrara. Bleika svæðið er vegsvæðið eins og búið er að skrá það en appelsínugula línan sýnir mörkin á vegsvæðinu eftir breytinguna. Stærð vegsvæðisins er óbreytt.
Tilgangur með þessu erindi er því að kynna þessa smávægilegu breytingu og kanna hvort sveitarfélagið, sem landeigandi, hafi athugasemdir við breytinguna.
Séu ekki athugasemdir við tilfærsluna geri ég ráð fyrir að senda sveitarfélaginu skjöl til uppáskriftar svo hægt sé að hnika vegsvæðinu til í fasteignaskrá.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við breytinguna.

Samþykkt samhljóða.

8. Merkjablað fyrir lóðina Eyrarvegur 4b.
Lagt fram nýtt merkjablað fyrir lóðina Eyrarvegur 4b þar sem lóðin er sameinuð bílastæði við Bakkaveg og lóðunum Eyrarvegur 6 og Eyrarvegi 8. einnig sameinuð í lóðinni á merkjalýsingu. Sameining lóðarinnar er hluti af samkomulagi um afhendingu lóðar við Háholt sem er í eigu Ísfélags til sveitarfélagsins.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir merkjalýsinguna.

Samþykkt samhljóða.

9. Ósk um uppsetningu á vinnubúðum ásamt lagningu slóða samkvæmt meðfylgjandi korti.
Skútaberg hefur lagt fram ósk um að koma upp vinnubúðum til bráðabirgða á meðan framkvæmdir við Brekknaheiði standa yfir. Lagt fram kort af staðsetningu.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd heimilar uppsetningu á vinnubúðum samkvæmt meðfylgjandi korti til bráðabirgða og lagningu slóða til bráðabirgða á milli fyrirhugaðra vinnubúða og námu. Búðirnar skulu samþykktar af slökkviliðsstjóra með öryggisúttekt.

Samþykkt samhljóða.

10. Breyting á umferðarhraða á Þórshöfn
Tillaga um breytingar á hámarkshraða á Þórshöfn.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir þær breytingar á hámarkshraða sem settar eru fram í tillögunni.

Samþykkt samhljóða.

11. Nýtt merkjablað fyrir Miðholt 21-27 ásamt lóðaleigusamningi – breyting.
Lóðin er skráð 1457m2 hjá HMS og breytingin felur í sér að merkjablað verður í samræmi við það.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- um umhverfisnefnd samþykkir merkjalýsingu fyrir Miðholt 21-17

Samþykkt samhljóða.

12. Greinargerð og fylgigögn frá Six Rivers vegna fyrirhugaðrar skógræktar í landi Miðfjarðarnessels í Miðfirði
     12.1 Kort af svæðinu
     12.2 Umsögn Minjastofnunar
     12.3 Fornleifaskráning.
Umsókn frá Six Rivers um heimild til skógræktar og landgræðslu í landi Miðfjarðarnessels í Miðfirði.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir framkomnar hugmyndir og framkvæmdaleyfi fyrir þeim.

Samþykkt samhljóða.

13.Önnur mál.
a)
Frá eiganda Langanesvegar 27.
Bílastæðamál við Langanesveg 27. Lóðin við Langanesveg 27 er eins og er ekki með nothæft bílastæði og nota þarf innkeyrsluna næsta hússins til að komast á lóðina. Það væri nauðsynlegt að lækka gangstéttina eða breikka lækkunina hjá Langanesveginum 25 og búa til innkeyrslu niður á lóðina.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir að lækkuð verði gangstétt við húsið þannig að möguleiki sé á að hafa bílastæði syðst á lóðinni.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 17:40.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?