Fara í efni

41 fundur skipulags- og umhverfisnefndar

06.05.2025 14:00

Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd

41. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 6. maí 2025. Fundur var settur kl. 14:00

Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Ina Leverköhne, Þorsteinn Vilberg, Þorri Friðriksson, Sigtryggur Brynjar Þorláksson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.

Fundargerð

1. Fundargerð HSNE nr. 241 frá 9. apríl 2025
Fundargerðin lögð fram

2. Umsókn um lóðina Lækjarvegur 2 ásamt teikningum  
     02.1 Útlitsteikning af svipuðu húsi
     02.2 Útlitsteikning
     02.3 Grunnteikning 1
     02.4 Grunnteikning 2
     02.5 Sneiðmynd
RarRan ehf, kt. 460522-1530 sækir um lóðina Lækjarvegur 2. Teikning af sambærilegu húsi, útlitsteikning, grunnteikningar og sneiðmynd.

Bókun um afgreiðslu: Samkvæmt gildandi skipulagi fyrir þetta hverfi er heimiluð þakhæð 4 m. Teikning af húsi sýnir þakhæð upp á 5,5 m á 1-2 hæðum. Nefndin getur því ekki fallist á byggingu hússins á þessari lóð en samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjanda. Óskað er eftir nýjum teikningum að húsi sem stenst kröfur deiliskipulagsins.

Samþykkt samhljóða.

3. Umsókn um byggingaleyfi vegna stækkunar á Nausti 2. áfangi ásamt teikningum, byggingalýsingu og skráningartöflu.
     03.1 Byggingalýsing.
     03.2 Grunnmynd
     03.3 Snið
     03.4 Skráningartafla
     03.5 Skráningartafla samantekt.
     03.6 Umsögn HNE
     03.7 Umsögn Vinnueftirlits
Almar Eggertsson fh. Faglausnar sækir um byggingaleyfi fyrir 2. áfanga byggingar dvalar- og hjúkrunarheimilisins Naust, Langanesvegi 3b. Byggingalýsing, grunnmynd, snið og skráningartafla fylgir.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti byggingaráformin og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað til hans.

Samþykkt samhljóða.

4. Staðsetning sumarhúsa að Hallgilsstöðum ásamt teikningum.
Tupaarnaq Else Bjerge Motzfeld sækir um að byggja 2 sumarhús við Hallgilsstaði. Með fylgir kort af staðsetningu, grunnteikning, snið og 3D teikning.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti byggingaráformin og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað til hans.

Samþykkt samhljóða.

5. Erindi frá Tryggva Steini um uppsetningu á þrautabraut fyrir torfæruhjól.
Tryggvi Steinn Sigfússon leggur fram erindi um að fá að setja upp þrautabraut fyrir torfæruhjól. Kort af staðsetningu fylgir.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin tekur jákvætt í erindið og styður uppbyggingu þrautabrautar á þessu svæði. Til að hægt verði að úthluta svæðinu samkvæmt erindinu þarf nefndin að fá ítarlegri upplýsingar varðandi umfang og gerð framkvæmda. Einnig óskar nefndin eftir upplýsingum um hver bera muni ábyrgð á framkvæmdum og rekstri svæðisins.

Samþykkt samhljóða.

6. Veitingastaðurinn Holtið, teikning af fyrirhuguðum palli.
Lyngholt ehf. sem er með félagsheimilið Þórsver á leigu undir nafninu Holtið leggur fram teikningu af fyrirhuguðum palli við veitingastaðinn.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin heimilar eigendum Lyngholts að gera pall samkvæmt meðfylgjandi teikningu við félagsheimilið Þórsver.

Samþykkt samhljóða.

7. Umsókn um byggingaleyfi vegna Sunnuvegar 12 frá Sigurbergi Árnasyni e-u.
07.0 Umboð umsækjenda, Dominik Michal Potrykus og Mikolaj Potrykus til Sigurbergs Árnasonar arkitekts vegna umsóknar um byggingaleyfi við Sunnuveg 12.
07.1 – 07.3 Teikningar
07.4 Skráningartafla pdf.
07.5 Skráningartafla Excel
07.6 Merkjablað
Lögð fram umsókn um byggingaleyfi ásamt teikningum og skráningartöflu vegna Sunnuvegar 12. HMS hefur gert athugasemd við hnit lóðar (01.05.2025): Stöðu breytt frá yfirferð HMS í „Frávísað af HMS Mál 1999 - Sunnuvegur 12 Þórshöfn - Stöðubreyting“ – Athugasemd: Hnit 3 rangt. Frávísað. Skipulagsfulltrúi hefur lagfært hnit og HMS samþykkt merkjablað sem bíður staðfestingar sýslumanns.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti byggingaráformin og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi með þeim fyrirvara að sýslumaður hafi afgreitt uppfærða merkjalýsingu.

Samþykkt samhljóða.

8. Önnur mál.
     a) Umhverfisverðlaun 2025.
Sveitarstjóra falið að gera auglýsingu um verðlaunin þetta árið sem varðar snyrtilegasta býlið í Langanesbyggð.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 14:40.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?