Fara í efni

7. fundur úthlutunarnefndar menningarsjóðs Langanesbyggðar

22.05.2025 15:00

7. fundur Úthlutunarnefndar menningarsjóðs Langanesbyggðar

Haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, 22. maí 2025. fundur hófst kl. 15:00.

Mætt voru: Halldóra Sigríður Ágústsdóttir formaður, Hrafngerður Ösp Elíasdóttir, Eggert Stefánsson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð - svo var ekki og fundur settur.

Dagskrá og fundargerð

1. Staða sjóðsins og úthlutanir 2024.
Lagt fram til kynningar.

2. Skilagrein frá Aðalheiði Eysteinsdóttur vegna myndlistarsýningar í Sauðaneshúsi.
Skilagreinin lögð fram

3. Lokaskýrsla vegna upplýsingaskiltis um Kristján frá Djúpalæk.
Lokaskýrsla lögð fram

4. Lokaskýrsla frá Jóni Gunnþórssyni vegna hljóðupptöku.
Hljóðupptökum eru lokið og lög aðgengileg á Sportify.

5. Umsókn um styrk frá Alvin Möller. Farið fram á kr. 100.000.-
Verkefnið varðar gerð myndar sem tekin verður upp á Ytra-Lóni

Bókun um afgreiðslu: Nefndin mælir með samþykkt umsóknarinnar og óskar eftir skýrslu um framvindu verksins þegar því er lokið. Nefndin samþykkir að greiða styrkinn út í einu lagi í upphafi verks.

Samþykkt samhljóða

6. Umsókn um styrk frá Auði Lóu Guðnadóttur. Farið er fram á kr. 100.000.-
Sótt er um styrk vegna námskeiðs á Þórshöfn.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin mælir með samþykkt umsóknarinnar og óskar eftir skýrslu um framvindu verksins þegar því er lokið. Nefndin samþykkir að greiða styrkinn út í einu lagi í upphafi verks.

Samþykkt samhljóða.

7. Umsókn um styrk frá Röstinni. Farið er fram á kr. 250.000.-
Hugmyndin er að bjóða 2 listamönnum að koma og dvelja í Langanesbyggð og vinna að listsköpun.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin mælir með samþykkt umsóknarinnar og óskar eftir skýrslu um framvindu verksins þegar því er lokið. Nefndin samþykkir að greiða styrkinn út í einu lagi í upphafi verks.

Samþykkt samhljóða.

8. Önnur mál.
a) Nefndin leggur til að úthlutað verði aftur í haust þar sem rúmur helmingur upphæðar sem ætluð var til sjóðsins er eftir.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða

Fundi slitið kl. 15:25

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?