Fara í efni

9. fundur landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar

19.08.2025 19:00

Fundur í landbúnaðar- og dreifbýlisnefnd

9. fundur í landbúnaðar og dreifbýlisnefnd. Haldinn að Grásteini, þriðjudaginn 19. ágúst 2025 kl. 19:00.
Mættir eru: Eggert Stefánsson, Jóhannes Ingi Árnason, Hafliði Jónsson, Ágúst Marinó Ágústson, Soffía Björgvinsdóttir. Einnig mætti á fundinn Árni Gunnarsson fjallskilastjóri. Eggert ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.

1. Niðurjöfnun á göngum og útgáfa gangnaseðils 2025.
Fjallað um niðurjöfnun ganga og útgáfu gangaseðils.
Nefndin lauk vinnu við niðurjöfnun gagnaverka fyrir árið 2025
Gagnaseðill lagður fram.

Samþykktur samhljóða

2. Bréf til sveitarfélaga frá Bændasamtökum Íslands vegna álits umboðsmanns um lausagöngu búfjár.
Bréfið lagt fram til kynningar.

3. Önnur mál
Jóhannes Ingi spyr um hvernig staðan á fjallvegasjóðspeningum sé. Hverjar úthlutanir úr sjóðnum séu á þessu og sl. ári.
Formaður vísar málinu til sveitastjóra.

Formaður upplýsir nefndina um framkvæmdir við réttaraðhald á Sóleyjarvöllum. Verkið er unnið í samstarfi fjáreigenda á svæðinu.
Samþykkt að sveitafélagið greiði efniskostnað.

Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða Fundi slitið kl. 22:30
Prentari ekki á staðnum og því ekki hægt að prenta út fundargerð til undirritunar.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?