Fara í efni

10. fundur landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar

12.08.2026 19:30

Fundur í landbúnaðar- og dreifbýlisnefnd

10. fundur landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2 miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Fundur settur kl. 19:30.
Mættir eru: Dagur Indriðason formaður, Eggert Stefánsson, Halldór Halldórsson, Soffía Björgvinsdóttir, krzysztof Krawczyk og Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.

Árni Gunnarsson, fjallskilastjóri sat einnig fundinn.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.

Fundargerð


1. Erindisbréf landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar – endurskoðun
Lagt fram til kynningar.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin gerir engar athugasemdir við erindisbréf nefndarinnar nema óskar eftir upplýsingum um hverjir sitja í stjórn Svalbarðsskóla.

Samþykkt samhljóða.

2. Atvinnustefna Langanesbyggðar
2.1. Bókun frá 54. fundi sveitarstjórnar.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin mun hafa stefnuna til hliðsjónar í sínum nefndarstörfum.

Samþykkt samhljóða.

3. Erindi atvinnuvegaráðuneytisins um búfjárbeit og ágang búfjár
3.1. Regluverk um búfjárbeit - minnisblað matvælaráðuneytisins
Lagt fram til kynningar.

4. Endurskoðun fjallskilasamþykktar – erindi frá Þingeyjarsveit
Endurskoðun fjallskilasamþykktar fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar leggur til, að þau sveitarfélög sem standa að samþykktinni, skipi í nefnd sem hefur það að markmiði að endurskoða samþykktina með tilliti til breytts stjórnskipulags.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin tilnefnir Soffíu Björgvinsdóttur sem fulltrúa Langanesbyggðar.

Samþykkt samhljóða.

5. Niðurjöfnun gangna og útgáfa gangnaseðils 2026

Bókun um afgreiðslu: Nefndin lauk vinnu við niðurjöfnun gagnaverka fyrir allar þrjár fjallskiladeildir í Langanesbyggð og samþykkir gangnaseðil.

Samþykkt samhljóða.

6. Girðingamál meðfram nýjum vegi á Brekknaheiði
Vegagerðin hafnaði á sínum tíma að girða meðfram nýjum vegi á Brekknaheiði á þeim rökum að ekki væri um nýframkvæmd að ræða. Aðal rök Vegagerðarinnar eru fjarri raunveruleikanum þar sem að nýr vegur er meira og minna í tugi metra fjarlægð frá núverandi vegi.

Bókun um afgreiðslu: Landbúnaðar- og dreifbýlisnefnd hvetur sveitarstjórn til að taka upp viðræður að nýju við Vegagerðina þar sem augljóst er að ógirtur nýr vegur mun stórauka líkur á slysum bæði fyrir menn og skepnur. Svæðið sem um ræðir er skipulagt Landbúnaðarland (afrétt) og því mun aukin umferð og hærri umferðarhraði stórauka slysahættur á svæðinu. Nefndin bendir jafnframt á að víða annarsstaðar hafa verið byggðir upp vegir og girt meðfram þeim eins og sjá má í Vopnafirði, Hólaheiði og víðar.

Samþykkt samhljóða.


Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða

Fundi slitið kl. 22:00.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?