Fara í efni

22. fundur hverfisráðs Bakkafjarðar

08.05.2025 17:00

Fundur Hverfisráð Bakkafjarðar

22. fundur í Hverfisráði Bakkafjarðar, haldinn miðvikudaginn 8. maí 2025 kl. 17.00 að Skólagötu 5, Bakkafirði.
Mættir eftirtaldir nefndarmenn og varamenn: Gunnlaugur Steinarsson, Rósa Björk, Magnúsdóttir, Freydís Sjöfn Magnúsdóttir og Árni Bragi Njálsson.
Auk þess sat fundinn: Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð – svo var ekki og fundur settur.

Fundargerð

1. Kynning á samfélagsfulltrúa, Svanhildi Arnmundsdóttur.
Svanhildur kynnti sig og sína sýn á þau verkefni sem falla undir hennar verksvið.

2. Íbúakönnun sem kynnt var á íbúafundi.
Lögð fram íbúakönnun sem kynnt var fyrst á íbúafundi á Bakkafirði 6. maí sl.

Bókun um afgreiðslu: Hverfisráð leggur til að könnunin verði endurtekin inna 2ja ára til að fá samanburð á afstöðu íbúa.

Samþykkt samhljóða.

3. Erindi frá Verkís með ósk um skipulagsgerð vegna áforma um virkjun Staðarár í Bakkafirði. 
     03.1 Skipulagslýsing á breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 og nýju deiliskipulagi.
     03.2 Bókun skipulags- og umhverfisnefnar vegna málsins á 40. fundi 8.04.2025.
Fyrir liggur ósk frá verkfræðistofunni Verkís um að fara í skipulagsgerð vegna áforma um virkjun Staðarár í Bakkafirði.

Bókun um afgreiðslu: Hverfisráð lýsir miklum áhyggjum af virkjunaráformum sem kynnt eru af Verkís vegna þeirrar röskunar sem þau augljóslega valda á náttúru í Bakkafirði. Verði samþykkt að halda áfram með verkið leggur ráðið til að við framkvæmdirnar verði gripið til mótvægisaðgerða sem m.a. tryggja að helsta aðdráttarafl þessa svæðis, Draugafossi verði hlíft. Fossinn er í „Áfangastaðaáætlun Norðurlands“.

Samþykkt samhljóða.

4. Önnur mál
     a) Sorpmál eftir breytingu á sorpkerfi.
     Hverfisráð óskar eftir því að fá fund með umhverfisfulltrúa sveitarfélagsins.
     b) Borðbúnaður í skólanum.
     Rætt um búnað sem samfélagið á Bakkafirði á og á að vera í skólahúsnæðinu og verslun / veitingastað. Óskað er eftir að starfsmaður á Bakkafirði         taki saman lista yfir það sem til er og beri saman við það sem á að vera til.
     c) Auglýsing á rekstrinum.
     Samfélagsfulltrúi kemur með greinargerð og hugmyndir að rekstri á Bakkafirði eftir að núverandi samningur rennur út 1. nóvember nk. Jafnframt         hvetur hverfisráð sveitarstjórn til að finna starfsmann Þjónustumiðstöðvar sem er búsettur á Bakkafirði og hverfisráð er tilbúið til að aðstoða við         þá leit.
     d) Rætt um húshjálp á Bakkafirði og Þórshöfn.
     Hverfisráð er tilbúið að aðstoða við leit að starfsmanni.
     e) Rætt um gönguleiðir. Lagt til að starfsmaður sem væntanlegur er á vegum SSNE til Bakkafjarðar til að kortleggja gönguleiðir hafi samband við         samfélagsfulltrúa um athyglisverðar gönguleiðir.
     f) Rætt um leiktæki sem styrkt voru til uppsetningar á Bakkafirði.
     Samfélagsfulltrúi mun rekja feril umsóknar og niðurstöður hennar sem að mati hverfisráðs er ekki í samræmi við upphaflegar hugmyndir.

Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða.

Ekki til prentari á staðnum og því ekki hægt að undirrita fundargerð.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?