22. fundur hafnarnefndar
Fundur í hafnarnefnd
22. fundur hafnarnefndar Langaneshafna haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 á Þórshöfn miðvikudaginn 15. júlí 2026. Fundur hófst kl. 10:00.
Mættir voru: Sigurður Ragnar Kristinsson formaður, Jónas Jóhannsson, Jóhann Ægir Halldórsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fundinn og gaf fundarmönnum kost á að gera athugasemdir við fundarboð. Engar athugasemdir voru gerðar og var fundur því settur.
Rob Kamsma frá Vegagerðinni kom inn á fundinn á Teams undir 3. lið.
Fundargerð
1. Fundargerð 483. fundar stjórnar Hafnarsamband Íslands frá 29. maí 2026
Fundargerðin lögð fram.
2. Fundargerð 98. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegss. frá 12. júní 2026
Fundargerðin lögð fram.
3. Erindi frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðs útboðs á nýrri harðviðarbryggju
03.1 Harðviðarbryggja – útboðs- og verklýsing
03.2 Harðviðarbryggja – útboðsteikningar
Rob Kamsma frá Vegagerðinni fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugað útboð og lagði fram þá tillögu að fjárveiting í austur-vesturgarð (stálþil) verði nýtt í harðviðarbryggju og sótt verði um að nýju í næstu samgönguáætlun fyrir austur-vesturgarð.
Bókun um afgreiðslu: Hafnarnefnd samþykkir tillögu Robs og leggur áherslu á að klára harðviðarbryggju svo það sé hægt að ganga frá aðkomuna að höfninni.
Samþykkt samhljóða.
4. Erindi frá Hafnarsambandi Íslands vegna umsagnar á frumvarpi.
Lagt fram til kynningar.
5. Minnisblað frá KPMG varðandi meðferð virðisaukaskatts við sölu á hafnarþjónustu til erlendra aðila sem ekki hafa fasta starfsstöð hér á landi. Lagt fram til kynningar.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:31