20. fundur hafnarnefndar, aukafundur
Fundur í hafnarnefnd
20. fundur hafnarnefndar Langaneshafna, aukafundur haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 28. apríl 2026 undur var settur kl. 12:00.
Mættir voru: Gunnlaugur Steinarsson formaður, Jónas Jóhannsson, Þorri Friðriksson hafnarvörður og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru gerðar væru við fundarboð – engar athugasemdir – og fundur því settur.
Til fundarins mættu Siggeir Stefánsson og Rafn Jónsson frá Ísfélagi.
Fundargerð
1. Bréf Ísfélags til Langanesbyggðar vegna dýpkunar.
Í bréfi Ísfélags koma fram upplýsingar um heildarkostnað við framkvæmdir við dýpkun hafnarinnar en hann er metinn á um 200 m.kr. Þar af eru 143 milljónir greiddar. Ísfélag fer fram á að Hafnarsjóður viðurkenni að dýpkunin sem gerð var 2024 sé fyrirframgreiddur kostnaður af hálfu Hafnarsjóðs og Ísfélagsins fyrir Vegagerðina og sé metin sem eign þeirra sem greiddu að jöfnu. Farið er fram á að Vegagerðin taki þátt í þeim umframkostnaði samkvæmt hafnarlögum 61/2003 þar sem dýpkað var samkvæmt tillögum sem hafa legið fyrir allt frá 2012.
Bókun um afgreiðslu: Ísfélagsmenn og fulltrúar í hafnarnefnd gerður grein fyrir sínum sjónarmiðum varðandi skiptingu kostnaðar sem lá fyrir í útreikningum hafnarvarðar.
Samþykkt samhljóða.
2. Minnisblað til Vegagerðarinnar um dýpkunarframkvæmdir
02.1 Kort af fyrirhugaðri dýpkun hafnarinnar frá 2012 – tillaga.
Í minnisblaði til Vegagerðarinnar er farið fram á að dýpkunin sem gerð var 2024 verði fyrirframgreiddur kostnaður Vegagerðarinnar samkvæmt þeim hugmyndum sem hafa verið upp allt frá 2012 (í meðfylgjandi gögnum frá 2012)
Bókun um afgreiðslu: Sveitarfélagið mun senda meðfylgjandi bréf til Vegagerðarinnar og fara fram á greiðslu fyrir þann kostnað sem fór fram úr áætlun – samkvæmt þeim fyrirætlunum sem hafa verið um dýpkun hafnarinnar allt frá árinu 2012. Nefndin og fulltrúar Ísfélags eru sammála að þegar greiðsla fæst fyrir þá dýpkun sem lagt var í mun þeirri upphæð verða skipt á milli sveitarfélagsins og Ísfélags samkvæmt fyrirfram ákveðinni skiptinu verksins, 50% á móti 50%.
Samþykkt samhljóða.
3. Önnur mál
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:45