Fara í efni

19. fundur hafnarnefndar

14.04.2026 12:00

Fundur í hafnarnefnd

19. fundur hafnarnefndar Langaneshafna, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 14. apríl 2026 Fundur var settur kl. 12:00.

Mætt voru: Gunnlaugur Steinarsson formaður, Jónas Jóhannsson, Þorri Friðriksson, Helga G. Henrýsdóttir og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru gerðar væru við fundarboð – engar athugasemdir – og fundur því settur.

Formaður óskar eftir því að eftirfarandi liðir verði teknir fyrir með afbrigðum þar sem þeir bárust ekki fyrr en eftir að fundarboð var sent út.
Liður 2 – fundargerð hafnarsambands nr. 480
Liður 3 – fundargerð hafnarsambands nr. 481
Liður 8 – Minnisblað vegna virðisaukaskatts skemmtiferðaskipa
Liður 9 – Umsögn um frumvarp til laga um lagareldi frá stjórn Samtaka sjávarútvegsfélaga.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð

1. Fundur stjórnar hafnarsambands Íslands nr. 479 frá 19.01.2026.
Fundargerðin lögð fram

2. Fundur stjórnar hafnarsambands Íslands nr. 480 frá 16.02.2026
Fundargerðin lögð fram

3. Fundur stjórnar hafnarsambands Íslands nr. 481 frá 17.03.2026
Fundargerði lögð fram

4. Afmörkun hafnsvæða. Leiðbeiningar frá Innviðaráðuneyti.
Innviðaráðuneytið hefur sent leiðbeiningar til allra hafna á Íslandi um afmörkun hafnsvæða.
Til upplýsinga

5. Bréf Ísfélags til Langanesbyggðar vegna dýpkunar.
Í bréfi Ísfélags koma fram upplýsingar um heildarkostnað við framkvæmdir við dýpkun hafnarinnar en hann er metinn á um 200 m.kr. Þar af eru 143 milljónir greiddar. Ísfélag fer fram á að Hafnarsjóður viðurkenni að dýpkunin sem gerð var 2024 sé fyrirframgreiddur kostnaður af hálfu Hafnarsjóðs og Ísfélagsins fyrir Vegagerðina og sé metin sem eign þeirra sem greiddu að jöfnu. Farið er fram á að Vegagerðin taki þátt í þeim umframkostnaði samkvæmt hafnarlögum 61/2003 þar sem dýpkað var samkvæmt tillögum sem hafa legið fyrir allt frá 2012.

Bókun um afgreiðslu: Málinu frestað, sjá bókun undir næsta lið.

Samþykkt samhljóða.

6. Minnisblað til Vegagerðarinnar um dýpkunarframkvæmdir
     04.1 Kort af fyrirhugaðri dýpkun hafnarinnar frá 2012 – tillaga.
Í minnisblaði til Vegagerðarinnar er farið fram á að dýpkunin sem gerð var 2024 verði fyrirframgreiddur kostnaður Vegagerðarinnar samkvæmt þeim hugmyndum sem hafa verið upp allt frá 2012 (í meðfylgjandi gögnum frá 2012)

Bókun um afgreiðslu: Málinu frestað – nefndin fer fram á fund með forsvarsmönnum Ísfélags um málið sem fyrst.

Samþykkt samhljóða.

7. Aðstaða fyrir smábátahöfn á Þórshöfn – bréf smábátasjómanna.
Smábátasjómenn á Þórshöfn hafa sent meðfylgjandi bréf þar sem farið er fram á ákveðnar breytingar á hafnaraðstöðu. Ennfremur óska smábátaeigendur eftir að vera hafðir með í ráðum varðandi framtíðarskipulag hafnarinnar.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar smábátasjómönnum bréfið. Nefndin tekur vel í erindi um að auka við legurými með kaupum á þremur „fingrum“. Flotbryggja verður ekki færð þar sem til stendur að gera timburbryggju á næsta ári og því óþarfa kostnaður að færa flotbryggju aftur vegna þeirra framkvæmda. Hafnarverði falið að hafa samband við Olíudreifingu og kann möguleika á nýrri staðsetningu.

Samþykkt samhljóða.

8. Minnisblað vegna virðisaukaskatts skemmtiferðaskipa ásamt fylgiskjölum.
Hafnarsamband Íslands hefur sent minnisblað hvernig reglum er framfylgt varðandi komur skemmtiferðaskipa og álagningu virðisauka á starfsemi þeirra.

Lagt fram til kynningar

9. Umsögn um frumvarp til laga um lagareldi frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
Lagt fram til upplýsinga

10. Önnur mál

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:45

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?