18. fundur hafnarnefndar
Fundur í hafnarnefnd
18. fundur hafnarnefndar Langaneshafna, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, 02.02.2026 Fundur var settur kl. 16:00.
Mættir voru: Gunnlaugur Steinarsson formaður (í fjarfundi), Jónas Jóhannsson, Halldór R. Stefánsson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru gerðar væru við fundarboð – engar athugasemdir – og fundur því settur.
Fundargerð
1. Skýrsla um framtíðarstefnu hafna.
Skýrslan lög fram til kynningar
2. Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 476 frá 22.10.2025
Fundargerðin lögð fram
3. Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 477 frá 18.11.2025
Fundargerðin lögð fram
4. Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 478 frá 03.12.2026
Fundargerðin lögð fram
5. Atvinnustefna Langanesbyggðar – lokaskjal
05.1 Bókun sveitarstjórnar um atvinnustefnu – lokaskjal.
Lokið er mótun atvinnustefnu fyrir Langanesbyggð 2026-2030 og aðgerðaráætlun 2026-2028.
Bókun um afgreiðslu: Hafnarnefnd minnir á að sjávarútvegur skapar nærri helming atvinnutekna í Langanesbyggð. Í þeim kafla þar sem fjallað er um áherslur er tiltekið í 2. lið að „vinna að heildstæðri framtíðaráætlun hafna innan Langanesbyggðar, með þarfir sjávarútvegs, iðnaðar og ferðaþjónustu í huga“. Einnig er í kaflanum „vel tengd (bls. 17) talað um framtíðaráætlun hafna.
Hafnarnefnd tekur undir þetta og fer þess á leit við hafnarstjóra, í samvinnu við hagsmunaaðila sem nýta hafnir Langanesbyggðar að gerð verði heildstæð áætlun um framtíð hafna Langanesbyggðar, þróun þeirra, nýtingu og nauðsynlegar framkvæmdir til að gera hafnarskilyrði sambærileg við það sem best þekkist þannig að hafnirnar komi að fullum notum við að styrkja samfélagið í Langanesbyggð. Þetta verði gert samhliða vinnu við nýtt aðalskipulag Langanesbyggðar.
Samþykkt samhljóða.
6. Tillaga að umsögn til samgöngunefndar Alþingis vegna samgönguáætlunar 2026- 2040 ásamt aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030
06.1 – 06.5 Fylgiskjöl vegna tillögu að umsögn.
Bókun um afgreiðslu: Hafnarnefnd Langaneshafna tekur undir þá umsögn sem sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur bókað varðandi Samgönguáætlun. Nefndin ítrekar mikilvægi hafna Langanesbyggðar og að sú upphæð sem farið er fram á að sett verði inn í áætlunina er algjört lámark þess sem þarf til að bæta aðstöðu við höfnina til að hún geti þjónað hlutverki sínu sem best. Nefndin skorar á Umhverfis- og samgöngunefnd að taka tillit til mikilvægi sjávarútvegs á þeim stöðum þar sem byggð byggir um helming afkomu sinnar á atvinnugreininni.
Samþykkt samhljóða.
7. Önnur mál
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00