Fara í efni

28. fundur atvinnu- og menningarnefndar

05.10.2026 16:00

Fundur í atvinnu- og menningarnefnd

1. fundur atvinnu- og menningarmálanefndar Langanesbyggðar, haldinn að Langanesvegi 2 Þórshöfn, mánudaginn 5. október 2026. Fundur var settur kl. 16:00.

Mætt voru: Björn S. Lárusson formaður, Hanna Margrét Úlfsdóttir, Birta Rún Ásgeirsdóttir, Silvía Jónsdóttir og Jón Hrói Finnsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð. Svo var ekki og gengið var til dagskrár.

Fundargerð

1. Fjölmenningardagur niðurstöður frá World Café umræðum 26.05.2026.

Lögð fram samantekt frá Fjölmenningardegi Vinnumálastofnunar um skólamál, samfélagsfræðslu, íslenskukennslu, lýðræðisþátttöku og upplýsingaflæði, og fræðslu og fyrirmyndarverkefni

Bókun um afgreiðslu: Nefndin tekur undir meginniðurtsöður frá umræðufundinum. Nefndin óskar jafnframt eftir áliti frá velferðar- og fræðslunefnd og félagsmáladeild Norðurþings vegna þeirra aðgerða sem lagt er til.

Samþykkt samhljóða.

2. Erindi – skipan Fjölmenningarráðs.

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa frá Langanesbyggð í fjölmenningarráð SSNE fyrir yfirstandandi kjörtímabil.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur til við byggðaráð að Aneta Potrykus verði tengiliður Langanesbyggðar í fjölmenningarráð SSNE og komi fram fyrir hönd sveitarfélagsins í málefnum er varða innflytjendur. Byggðaráð þarf að staðfesta tilnefninguna þar sem um greiðslur gæti verið að ræða vegna funda og ferðakostnaðar.

Samþykkt samhljóð.

3. Samstarf Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga í málefnum innflytjenda og flóttafólks.

Lagt fram erindi Vinnumálastofnunar þar sem óskað er eftir áframhaldandi samstarfi í málefnum innflytjenda og flóttafólks og óskað eftir þátttöku Langanesbyggðar á fundi um málefni þeirra sem haldinn verður á Akureyri þann 23. nóvember n.k.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar boð um þátttöku á staðarfundi sem haldinn verður á Akureyri 23 nóvember n.k. og felur fulltrúa Langanesbyggðar í fjölmenningarráði SSNE að sækja fundinn.

Samþykkt samhljóða.

4. Beiðni um þátttöku í heiðurssýningu.

Lagt fram erindi Bjargar Gunnarsdóttur um uppsetningu á heiðurssýningu Oddnýju Friðrikku Árnadóttur, frjálsíþróttakonu sem verður 70 ára á næsta ári.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin tekur jákvætt í erindið og óskar eftir áliti forstöðumanns Íþróttamannvirkja á beiðninni varðandi pláss fyrir sýningu. Nefndin felur sveitarstjóra meta kostnað og leita eftir samstarfi við UMFL.

Samþykkt samhljóða.

5. Erindisbréf atvinnu- og menningarnefndar.

Erindisbréf nefndarinnar hefur ekki verið formlega lagt fyrir sveitarstjórn til samþykktar en ekki voru gerðar athugasemdir í byggðaráði við erindisbréfið.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin óskar eftir að erindisbréfið verði lagt fyrir sveitarstjorn til samþykktar. Nefndin bendir á að gera þarf breytingar á samþykktum sveitarfélagsins grein 50 B1varðandi nafn og hlutverk nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

6. Opið fyrir umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Lagður fram tölvupóstur frá SSNE þar sem minnt er á að búið er að opna fyrir umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Áherslur í ár eru minna sótt svæði og lenging ferðatímabils.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin beinir því til sveitarstjóra og/eða skrifstofustjóra að auglýsa að opnað hafi verið fyrir umsóknir með hlekk sem sendur var frá SSNE á umsóknir á heimsíðu sveitarfélagins.

Samþykkt samhljóða.

7. Önnur mál

a. Auglýsing eftir styrkjum úr menningarsjóði

Atvinnu- og menningarnefnd felur skrifstofustjóra að auglýsa eftir umsóknum um styrki úr menningarsjóði.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. .16:50

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?