27. fundur atvinnu- og menningarnefndar
Fundur í atvinnu- og menningarnefnd
27. fundur atvinnu- og menningarnefndar Langanesbyggðar, haldinn að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 11. ágúst 2026. Fundur var settur kl. 16:00.
Mætt voru: Björn S. Lárusson formaður, Hanna Margrét Úlfsdóttir, Birta Rún Ásgeirsdóttir, Aníta Dröfn Reimarsdóttir og Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð. Svo var ekki og gengið var til dagskrár.
Fundargerð
1. Erindisbréf Atvinnu- og menningarnefndar – breytingar í samræmi við breytt hlutverk nefndarinnar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur fram meðfylgjandi breytingar á Erindisbréfi nefndarinnar í ljósi breytts hlutverks hennar. Málinu vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
2. Menningarstefna Langanesbyggðar – breytingar í samræmi við breytt hlutverk nefndarinnar.
02.1 Menningarsjóður úthlutunarreglur.
02.2 Umsóknareyðublað um styrk úr menningarsjóði.
Lögð fram Menningarstefna Langanesbyggðar með nokkrum lagfæringum. Ennfremur breyting á úthlutunarreglum menningarsjóðs í samræmi við það að starfsemi sjóðsins heyrir nú undir Atvinnu- og menningarnefnd. Með fylgir einnig eyðublað til umsóknar um styrk til menningarviðburðar / listviðburðar í Langanesbyggð.
Bókun um afgreiðslu: Breytingum á Menningarstefnu og úthlutunarreglum í samræmi við breytt hlutverk nefndarinnar vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
3. Atvinnustefna Langanesbyggðar 2026-2030 ásamt aðgerðaráætlun 2026-2028
Lögð fram til kynningar.
4. SSNE Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð 2026
Lagt fram til kynningar.
Bókun um afgreiðslu: Báðar þessar skýrslur, úr 3. og 4. lið, tengjast að öllu leiti í málefnum sem varða atvinnumál og mannlíf í Langanesbyggð og þar með hlutverki nefndarinnar. Skýrslurnar skarast að nokkru leiti.
Nefndin leggur til að gerð verði samantekt og aðgerðaráætlun sem byggja á þessum skýrslum og því skilað til nefndarinnar til umfjöllunar. Sveitarstjórn ákveði hvort og þá hverjum verði falið verkið.
Verkefnum í samantektinni verði forgangsraðað eftir mikilvægi, efnum og ástæðum. Meginflokkarnir verði:
- Atvinnumál
- Innviðir
- Mannlíf
Samþykkt samhljóða.
5. Flugklasinn – staða í apríl 2026
Lagt fram til kynningar.
6. Önnur mál
6.1 Umsókn í menningarsjóð
Kristín Heimisdóttir sækir um styrk úr menningarsjóði Langanesbyggðar til upptöku og útgáfu á lögum eftir höfunda í Langanesbyggð.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar erindið og samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr. og fer úthlutun fram eftir reglum sjóðsins.
Samþykkt samhljóða.
6.1 Fundartími nefndarinnar
Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur til fundartíma á mánudögum kl. 16:00 í nefndarvikum.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 16:58.