26. fundur atvinnu- og nýsköpunarnefndar
Fundur í atvinnu- og nýsköpunarnefnd
26. fundur atvinnu- og nýsköpunarnefndar Langanesbyggðar, haldinn að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 12. maí 2026. Fundur var settur kl. 16:00.
Mætt voru: Daníel Hansen formaður, Hjörtur Harðarson, Ólína Jóhannesdóttir og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð. Svo var ekki og gengið var til dagskrár.
Fundargerð
1. Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð – skýrsla frá SSNE.
Lögð fram skýrsla frá SSNE
Bókun um afgreiðslu: Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkar sérstaklega fyrir skýrsluna sem er vel unnin af Gunnari Má Gunnarssyni verkefnastjóra innviða og þakkar nefndin honum sérstaklega. Það er von nefndarinnar að skýrslan verði gott vinnuskjal fyrir komandi sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
2. Önnur mál
a) Skapandi sumarstörf 2026
Kynning á fyrirkomulagi skapandi sumarstarfa sumarið 2026. Ólína kynnti fyrirkomulagið.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir fyrirkomulagið eins og það er sett fram enda er það innan fjárheimilda.
Samþykkt samhljóða.
Formaður þakkaði nefndarmönnum fyrir vel unnin störf að kjörtímabilinu og í reynd eru mörg og margvísleg mál sem hafa komið inn á borð nefndarinnar. Það er ósk nefndarinnar að þau mál nýtist í verkum framtíðar.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:15.
.