Fara í efni

25. fundur atvinnu- og nýsköpunarnefndar

10.03.2026 16:00

Fundur í atvinnu- og nýsköpunarnefnd

25. fundur atvinnu- og nýsköpunarnefndar Langanesbyggðar, haldinn að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 10. mars 2026. Fundur var settur kl. 16:00.

Mætt voru: Daníel Hansen formaður, Ólína Jóhannesdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Hjörtur Harðarson boðaði forföll.

Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð. Svo var ekki og gengið var til dagskrár.
Christina Merkel sat fundinn undir 1. lið um skapandi sumarstörf.

Fundargerð

1. Skapandi sumarstörf – skýrsla frá Starkaði Sigurðssyni.
Starkaður Sigurðsson hefur lagt fram skýrslu um „Skapandi sumarstörf 2025“. Þar gerir hann upp framkvæmdina, kemur fram hugmyndir og tillögur um það sem betur má fara.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur til að verkefnið verði í formi styrks. Christina og Ólína munu forma ferlið og auglýsa eftir umsóknum.

Samþykkt samhljóða.

2. Aðgerðaráætlun vegna hreinsunar á Heiðarfjalli – vegna fyrirspurnar á síðasta fundi.
     02.1 Skýrsla Geislavarna ríkisins um geislamælingar á Heiðarfjalli frá 2023.
Sveitarstjóri fékk fyrirspurn á síðasta fundi nefndarinnar um stöðu mála á Heiðarfjalli og hreinsun á mengandi efnum. Meðfylgjandi eru tvær skýrslur um málið auk þess sem sveitarstjóri hefur verið í sambandi við Kristínu Kröyer sem fer með málið innan Orku- og náttúrustofnunar.

Bókun um afgreiðslu: Fjárframlag til verkefnisins að hreinsa Heiðarfjall fékkst ekki frá fjárlaganefnd á þessu ári. Reynt verður aftur í haust.

Samþykkt samhljóða.

3. Önnur mál
     a) Sveitarstjóri gerði grein fyrir þingsályktunartillögu um friðlýsingu á Langanesi sem Njáll Trausti Friðbertsson hefur í huga að flytja á Alþingi.
     b) Skoðunarstöð á Þórshöfn. Upplýst um stöðu mála.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:43.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?