24. fundur atvinnu- og nýsköpunarnefndar
Fundur í atvinnu- og nýsköpunarnefnd
24. fundur atvinnu- og nýsköpunarnefndar Langanesbyggðar, haldinn að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 17. febrúar 2026. Fundur var settur kl. 16:00.
Mætt voru: Daníel Hansen formaður, Hjörtur Harðarson, Aneta Potrykus, Þórir Jónsson, Ólína Jóhannesdóttir, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð. Svo var ekki og gengið var til dagskrár.
Formaður gerir að tillögu sinni að liður 3 verði tekin fyrst fyrir á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð
1. Atvinnustefna Langanesbyggðar – lokaskjal.
01.1 Bókun sveitarstjórnar vegna atvinnustefnu.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin er ánægð með atvinnustefnuna og leggur áherslu á að komandi atvinnu- og nýsköpunarnefnd taki upp þau atriði sem koma fyrir í skýrslunni og haldi vinnunni áfram.
Samþykkt samhljóða.
2. Skilti við eyðibýli – samskipti við Vegagerðina vegna skilta.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra falið að leita eftir styrkjum vegna verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
3. Þjóðgarður á Langanesi – Davíð Örvar Hansson og Gunnar Már Gunnarsson verða á Teams og svarar spurningum.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra falið að afla upplýsinga varðandi gang mála og mengun á Heiðarfjalli.
Samþykkt samhljóða.
4. Önnur mál
4.1 Skapandi sumarstörf.
4.2 Atvinnutækifæri og grunnþjónusta í Langanesbyggð.
Bókun: Nefndin leggur áherslu á að stutt verði við áform Verkstæði Hjartar um að koma á fót bifreiðaskoðun.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:43.