Fara í efni

65. fundur Byggðaráðs

30.10.2026 10:00

Fundur í byggðaráði

65. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn 30. október 2026. Fundur var settur kl. 10:00.

Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Mateusz Swierczewski, Jóhann Hafberg Jónasson, varamaður, Jón Hrói Finnsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir boðaði forföll.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Formaður óskaði einnig eftir frábrigðum frá dagskrá og að máli úr Samráðsgátt yrði bætt við sem 8. dagskrárlið. Málið fjallar um áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir.

Samþykkt samhljóða.
Starfsmenn One Systems kom á fundinn undir 7. Lið í gegnum fjarfundarbúnað.

Fundargerð

1. Fjárhagsáætlun Langanesbyggðar 2027-2023
Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur starfsmönnum skrifstofu að gera tillögur að leiðréttingu fasteignaskatts og fasteignagjalda með það fyrir augum að þjónustugjöld standi undir kostnaði við veitingu þjónustu og að álagningahlutfall fasteignaskatts lækki á móti. Taka skal mið af því að útgjöld heimila hækki að jafnaði ekki meira en 2,5%.

Samþykkt samhljóða.

2. Erindi til samningsaðila um sértækan byggðakvóta á Bakkafirði
Erindi áður tekið fyrir á 61. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst 2026. Lagt fram svar Hilmars Þór Hilmarssonar, stjórnarformanni Bjargsins ehf. við fyrirspurn byggðaráðs ásamt fylgiskjali og drög að svarbréfi sem formaður byggðarráðs hyggst senda í eigin nafni.

Bjarnheiður vék af fundi kl. 12:52 og Jón Hrói tók við ritun fundargerðar.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð þakkar Hilmari fyrir greinargóðar upplýsingar um starfsemi Bjargs ehf.

Byggðarráð tekur fram að það hefur ekki fengið umbeðnar upplýsingar um fjölda einstaklinga með lögheimili á Bakkafirði sem eru í heilsársstarfi við fiskvinnslu hjá samningsaðila og tekur fram að það telur sig ekki aðgang að svo ítarlegum upplýsingum um hagi útsvarsgreiðenda. Byggðarráð ítrekar því ósk sína.

Tekið skal fram að ekki er beðið um persónugreinanlegar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins.

Samþykkt samhljóða.

3. Erindi um aðstöðu í Þórsveri
Lagt fram erindi Karenar Rutar Konráðsdóttur, fyrir hönd Gistiheimilisins Lyngholts ehf. þar sem hún leggur fram tillögur að breytingum á aðstöðu í húsinu til að geta betur þjónað hlutverki skólamötuneytis.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur sveitarstjóra að skoða möguleikana varðandi úrbætur á aðstöðu.

Samþykkt samhljóða.

4. Envalys – Tilboð um þvívíddarlíkan

Lagt fram tilboð frá Envalys ehf vegna þrívíddarlíkans af mögulegu vindorkuveri á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð þakkar tilboðið en afþakkar þjónustuna.

Samþykkt samhljóða.

5. Consello ehf. – Tilboð í vinnu við útboð á tryggingum

Lagt fram tilboð frá Consello ehf. vegna vinnu við útboð á tryggingum.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð þakkar tilboðið en afþakkar þjónustuna.

Samþykkt samhljóða.

6. Brák íbúðafélag – Ósk um útgreiðslu stofnframlags vegna Miðholts 20-26

Lagt fram erindi frá Brák íbúðarfélagi þar sem óskað er eftir greiðslu á 75% stofnframlagi sveitarfélagsins vegna Miðholts 20-26.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur sveitarstjóra að reikna endanlegt framlag sveitarsfélagsins og útbúa viðauka vegna útgreiðslu stofnframlags.

Samþykkt samhljóða.

7. One Systems – Kynning á skjalakerfi
Starfsmenn One Systems kynntu skjalakerfið í gegnum fjarfundarbúnað.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð þakkar kynninguna og felur sveitarstjóra að kanna valkosti og kostnað af innleiðingu stafrænnar málaskrár og skjalakerfis.

Samþykkt samhljóða.

8. Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir. Mál nr. S-223/2026 í Samráðsgátt.
Innviðaráðuneyti hefur lagt fram áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð beinir því til hafnarnefndar að hún geri drög að umsögn um frumvarpsáformin og óskar eftir því að fá umsögnina til umfjöllunar áður en hún er send inn.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:49.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?