Fara í efni

64. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar

15.10.2026 10:00

Fundargerð

64. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn 15. október 2026. Fundur var settur kl. 10:00.

Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Mateusz Swierczewski, Jóhann Hafberg Jónasson, varamaður, Jón Hrói Finnsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir boðaði forföll.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Fundargerð

1. Undirbúningur fjárhagsáætlunar
Lagt fram yfirlit yfir stöðu fjárhags eftir fyrstu átta mánuði ársins. Verklag fjárhagsáætlunar og forgangsröðun fjárfestinga rædd.

2. Stígamót – ósk um fjárstuðning og samstarf um rekstur
Lagt fram erindi Stígamóta þar sem óskað er eftir fjárstuðningi og samstarfi um rekstur næsta árs.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð mun taka afstöðu til erindisins í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.

Samþykkt samhljóða.

3. Skipting kostnaðar við samstarf um Barnavernd 2026
Lögð fram tillaga Akureyrarbæjar að fjárhagsáætlun og kostnaðarskiptingu vegna samnings um rekstur sameiginlegrar barnaverndarþjónustu, þar sem Akureyrarbær er leiðandi sveitarfélag.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir kostnaðarskiptinguna en óskar eftir skýringum á 12% hækkun framlagsins á milli ára.

Samþykkt samhljóða.

4. Innviðaráðuneyti - Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
Lagt fram.

5. Hugmynd að vegaumbótum um Öxarfjörð

Lagt fram erindi frá Gunnari Guðmundssyni um hugmyndir um vegbetur í Öxarfirði.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð tekur undir hugmyndir um styttingu vegar um 20 km sem myndi nýtast íbúum Langanesbyggðar vel, en telur að það sé hlutverk Vegagerðarinnar að kanna mögulega vegkosti.

Samþykkt samhljóða.

6. Vegagerðin - útboð harðviðarbryggju
Lagðar fram upplýsingar um niðurstöður útboðs. Lægstbjóðandi dróg tilboð sitt til baka.

7. Málefni þjónustumiðstöðvar
Lagt fram minnisblað um hugmyndir um að færa starfsemi Þjónustumiðstöðvar úr núverandi húsnæði við Bakkaveg í nýtt húsnæði sveitarfélagsins við Háholt. Með því mætti mögulega ná fram aukinni samlegð á milli núverandi verkefna þjónustumiðstöðvar og verkefna sem snúa að meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur starfsmönnum að vinna hugmyndina áfram með tilliti til mögulegs hagræðis og kostnaðar.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:09.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?