Fara í efni

63. fundur byggðaráðs

02.10.2026 10:00

Fundur í byggðaráði
63. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn október 2026. Fundur var settur kl. 10:00.

Mætt voru: Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, varformaður, Mateusz Swierczewski, Jóhann Hafberg Jónasson varamaður og Jón Hrói Finnsson sem ritaði fundargerð.

Varaformaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Fundargerð

1. Fundargerð 27. fundar atvinnu- og menningarnefndar Langanesbyggðar frá 11. ágúst 2026
Fundargerð 27. fundar atvinnu og menningarnefndar lögð fram ásamt drögum að erindisbréfi nefndarinnar sem fjallað var um á fundinum.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við erindisbréfið og vísar afgreiðslu þess til sveitarstjórnar. Byggðarráð tekur undir ályktun atvinnu- og menningarnefndar um að gera þurfi aðgerðaáætlun í atvinnumálum og forgangsraða verkefnum í samræmi við áherslur nýrrar sveitarsjtórnar. Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjóra verði falið að halda utan um verkefnið.

Samþykkt samhljóða.

2. Fundargerð lokaúttektar vegna leikskólalóðar frá 22. september 2026
Fundargerð vegna lokaúttektar á lóð leikskólans Barnabóls á Þórshöfn 22. september 2026 lögð fram.

3. Fundargerð 92. fundar stjórnar samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
Fundargerð 92. fundar stjórnar samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 16. september 2026 lögð fram.

4. Samtök um kvennaathvarf, beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Í erindi frá 23. september óskar Linda Dröfn Gunnarsdóttir, fyrir hönd Samtaka um kvennaathvarf, eftir styrk frá sveitarfélögum á Norðurlandi eystra til að mæta húsnæðiskostnaði athvarfsins fyrir árið 2027, alls 4,3 milljónir króna. Hlutdeild Langanesbyggðar miðað við íbúafjölda er kr. 72.298,-.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir að veita umbeðinn styrk að fjárhæð 72.298,-.

Samþykkt samhljóða.

5. Beiðni um framlag til Menningarmiðstöðvar Þingeyinga vegna þakskipta.
Í ódagsettu erindi óskar Árni Pétur Hilmarsson, fyrir hönd Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, eftir framlagi Langanesbyggðar að fjárhæð kr. 3.460.414 til að standa straum af kostnaði við þakskipti á Safnahúsinu á Húsavík. Vilyrði fyrir hlut Langanesbyggðar í framlaginu var samþykkt á 37. fundi byggðaráðs þann 1. apríl 2025.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir greiðslu framlags að fjárhæð að fjárhæð kr. 3.460.414,-.

Samþykkt samhljóða.

6. Flugklasinn Air 66N – beiðni um rekstrarstyrk.
Í erindi frá 22. september 2026 óskar Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri, fyrir hönd Markaðsstofu Norðurlands eftir rekstrarframlagi til Flugklasans Air 66N til næstu þriggja ára, vegna óvissu um framlög ríkisins til verkefnisins. Umbeðin fjárhæð er kr. 500,- á hvern íbúa sveitarfélagsins eða 271.500,- miðað við íbúafjölda um síðustu áramót.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð vísar erindinu til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027-2030.

Samþykkt samhljóða.

7. Erindi stjórnar starfsmannafélags Langanesbyggðar
Stjórn starfsmannafélags Langanesbyggðar leggur til að sveitarfélagið veiti starfsmönnum sínum íþróttastyrk eða afslátt af kortum í íþróttamiðstöðina Ver á Þórshöfn.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð vísar erindinu til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027-2030.

Samþykkt samhljóða.

8. Ósk um stuðning við útgáfu Árbókar Þingeyinga.
Í erindi frá 23. september 2026 óskar Árni Pétur Hilmarsson, forstöðumaður, fyrir hönd Menningarmiðstöðvar Þingeyinga eftir stuðningi Langanesbyggðar við útgáfu Árbókar Þingeyinga með kaupum á auglýsingu.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir að kaupa hálfsíðu auglýsingu í ár en leggur til að framlag til útgáfunnar verði framvegis hluti af rekstrarframlagi til Menningarmiðstöðvar Þingeyinga.

Samþykkt samhljóða.

9. Íþróttasamband lögreglumanna - styrkbeiðni.
Lögð fram beiðni Íþróttasambands lögreglumanna um styrk að fjárhæð kr. 8.000,- vegna útgáfu á bækling fyrir börn í 1. bekk undir yfirskriftinni „Í umferðinni“ sem er sendur til allra sex ára barna í skólum landsins.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir að styðja verkefnið um umbeðna fjárhæð.

Samþykkt samhljóða.

10. Fundarboð aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
Fundarboð ársfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lagt fram.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur sveitarstjóra umboð til að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

11. Fundarboð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
Fundarboð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum lagt fram.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur sveitarstjóra umboð til að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

12. Eyrarvegur 1 (áður á dagskrá 62. fundar byggðaráðs 10. september 2026)
Formaður og sveitarstjóri fóru yfir samskipti við aðra eigendur að Eyrarvegi 1.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur sveitarstjóra og formanni að vinna áfram að málinu.

Samþykkt samhljóða.

13. Samningur við Rauðanes ehf.
Þau verkefni sem fyrirhugað var að fela starfsmanni Rauðaness hafa reynst minni að umfangi en ráð var fyrir gert. Sveitarstjóri leggur til að samningi við Rauðanes ehf. um vinnu við viðhald fasteigna og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins verði sagt upp og samið við fyrirtækið á breyttum forsendum.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir uppsögn samningsins og felur sveitarstjóra að leita eftir samkomulagi við Rauðanes um áframhaldandi verkefni.

Samþykkt samhljóða.

14. Málefni þjónustumiðstöðvar.
Umræðu frestað með samþykki allra fundarmanna.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:30.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?