62. fundur byggðaráðs, aukafundur
Fundur í byggðaráði
63. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn 11. september 2026. Fundur var settur kl. 10:00.
Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Mateusz Swierczewski og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Fundargerð
1. Útboð á áætlunarflugi – fækkun flugferða
Í útboði Vegagerðarinnar á áætlunarflugi á milli Akureyrar, Þórshafnar og Vopnafjarðar fyrr á árinu var flugleiðin boðin út með 40% skerðingu flugferða, úr fimm ferðum á viku í þrjár. Engar upplýsingar bárust Langanesbyggð um útboðið eða niðurstöðu þess frá vegagerðinni.
Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð Langanesbyggðar lýsir verulegum vonbrigðum með þessa miklu skerðingu á einu almenningssamgöngunum sem standa íbúum sveitarfélagsins til boða. Samgöngur eru meðal þess sem fólk horfir til þegar það velur sér búsetu og lögaðilar þegar þeir velja staðsetningu fyrir starfsemi sína. Sveitarfélögin á svæðinu róa að því öllum árum að bæta búsetuskilyrði og fá nýja aðila á svæðið til að fjölga störfum og tækifærum. Niðurskurður í flugsamgöngum er þungt högg í þeirri baráttu og í hróplegu ósamræmi um markmið opinberra áætlana um eflingu byggðar.
Byggðarráð lýsir einnig vonbrigðum með upplýsinga- og samráðsleysi Vegagerðarinnar við ákvörðunartökuna. Vegagerðin sendi sveitarfélaginu nýlega erindi þar sem kallað er eftir góðu samtali og samráði um skipulag og samgöngur og það hlýtur að teljast eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir.
Byggðarráð fer fram á að Vegagerðin endurskoði ákvörðun sína áður en gengið verður frá samningum um flugleiðina.
Samþykkt samhljóða.
2. Svar Byggðastofnunar vegna byggðakvóta
Í bréfi Arnars Más Elíassonar, fyrir hönd Byggðastofnunar, dagsettu 9. september 2026, svarar bréfritari ósk Langanesbyggðar um umsögn um áhrif byggðakvóta á sveitarfélagið. Einnig býður bréfritari sveitarstjórn upp á að funda með fulltrúum stofnunarinnar til að fara yfir málefni sem varða byggðakvótann.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð þakkar Byggðastofnun fyrir svarið en frestar afgreiðslu málsins.
Samþykkt samhljóða.
3. Íbúakönnun um vindorkuver og hafnaruppbyggingu
Lögð fram drög að spurningakönnun um uppbyggingu vindorkuvers og hafnar í Finnafirði, sem fyrirhugað er að leggja fyrir íbúa.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð er sátt við framlagða könnun og leggur áherslu á að góðar upplýsingar um þau verkefni sem um ræðir verði gerðar aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins áður en könnunin er birt íbúum.
Samþykkt samhljóða.
4. Undirbúningur fjárhagsáætlunargerðar
Rætt um verklag við gerð fjárhagsáætlunar Langanesbyggðar fyrir árin 2027-2030.
5. Framkvæmdir – grunnskóli, íþróttahús og vatnsveita
Lagt er til að leitað verði til verkfræðistofu með sérþekkingu á burðarþoli til að meta burðarþol og ástand burðarveggja og -bita í C-álmu grunnskólans á Þórshöfn og í íþróttahúsinu með það fyrir augum að gera tillögur að endurbótum húsanna. Einnig fá ráðgjöf varðandi mögulegar lausnir í vatnsveitumálum.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra falið að leita ráðgjafar og óska eftir tilboðum í verkefnin.
Samþykkt samhljóða.
6. Álit sveitarstjórna - vindorkuhugmyndir í 6. áfanga rammaáætlunar
Í bréfi Birgis Guðmundssonar, fyrir hönd faghóps 3 í rammaáætlun, dagsettu 25. ágúst 2026 óskar bréfritari eftir almennri umsögn Langanesbyggðar um hugmyndir um virkjun að Hnotasteini í Norðurþingi. Virkjunin yrði staðsett innan 30 km. frá mörkum Langanesbyggðar og hluti sveitarfélagsins því innan skilgreinds áhrifasvæðis hennar samkvæmt drögum að frumvarpi um rýmiseignir.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð gerir engar athugasemdir við áform um vindorkuver að Hnotasteini.
Samþykkt samhljóða.
7. Eyrarvegur 2
Rætt um stöðu mála.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur sveitarstjóra og formanni byggðaráðs að ræða við meðeigendur hússins um framtíð þess.
Samþykkt samhljóða.
8. Leit að heitu vatni - styrkur
Áður á dagskrá 50. fundar sveitarstjórnar þann 16. október 2025.
Lögð fram drög að samningi við Loftslags- og orkusjóð um verkefnið „Nýting jarðhita til húshitunar í Langanesbyggð“ sem snýr að jarðhitaleit. Í samningnum er gert ráð fyrir að verkefnið sé fjármagnað með styrk frá Loftslags- og orkusjóði að fjárhæð allt að 30 m.kr. og mótframlagi frá sveitarfélaginu að sömu fjárhæð. Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður 60 m.kr.
Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur sveitarstjóra og skrifstofustjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna framlags sveitarfélagsins á yfirstandandi ári og leggja fyrir sveitarstjórn á næsta fundi hennar.
Samþykkt samhljóða.
Ólína víkur af fundi vegna 9.liðar vegna vanhæfis.
9. Styrkbeiðni frá Blakfélaginu Álkum
Lögð fram beiðni blakfélagsins Álkna um stuðning Langanesbyggðar við félagið vegna kostnaðar við keppnisferðir.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að styrkja félagið um 250.000 kr.
Samþykkt samhljóða.
Ólína kemur aftur inn á fund.
10. SÍBS-blaðið – auglýsingar og styrktarlínur
Lagt fram erindi frá SÍBS þar sem Langanesbyggð er boðið að kaupa auglýsingu eða styrktarlínu í SÍBS-blaðinu.
Bókun um afgreiðslu: Styrkbeiðni hafnað.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:05.