Fara í efni

61. fundur byggðaráðs, aukafundur

20.08.2026 16:00

Fundur í byggðaráði

61. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn 20. ágúst 2026. Fundur var settur kl. 16:00.
Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Jóhann Hafberg Jónasson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Fundargerð

1. Niðurfelling reglulegs sveitarstjórnarfundar 21. ágúst 2026 og boðun aukafundar 28. ágúst 2026
Fyrir liggur tillaga um að fella niður reglulegan fund sveitarstjórnar sem fyrirhugaður er 21. ágúst 2026 og boða þess í stað til aukafundar sveitarstjórnar 28. ágúst 2026. Niðurstöður úttektar á rekstri sveitarfélagsins er að vænta 26. ágúst og hyggst sveitarstjórn að halda vinnufund þann dag með Birni Ingimarssyni sem annast hefur úttektina.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð, sem fer með sömu heimildir og sveitarstjórn meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi, samþykkir að fella niður reglulegan fund sveitarstjórnar 21. ágúst 2026. Jafnframt samþykkir byggðarráð að boðað verði til aukafundar sveitarstjórnar 28. ágúst 2026. Ákvörðunin er tekin með hliðsjón af því að niðurstöður úttektar á rekstri sveitarfélagsins er að vænta 26. ágúst. Með því að halda auka sveitarstjórnarfund 28. ágúst gefst sveitarstjórn kostur á að fjalla um niðurstöður úttektarinnar og taka þær til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

2. Þátttaka í rafrænu losunarbókhaldi – fyrri ákvörðun endurskoðuð
Byggðarráð tók erindið fyrir á síðasta fundi og afþakkaði þátttöku. Að undangengnu samtali við SSNE hefur byggðarráð ákveðið að endurskoða fyrri afstöðu og taka þátt í KOLKU.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir þátttöku í KOLKU, rafrænu og sjálfvirku losunarbókhaldi fyrir sveitarfélög innan SSNE. Byggðarráð felur skrifstofustjóra að tilkynna SSNE um þátttöku sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

3. Íþróttahús – ástand og nauðsynlegar endurbætur
Við nánari skoðun íþróttahússins hefur komið í ljós að ástand þess er mun verra en upphaflega var talið og nauðsynlegt er að bregðast við án tafar til að koma í veg fyrir frekari skemmdir.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð felur Vikari, sem hefur verið fenginn til að sjá um viðhald fasteigna Langanesbyggðar, að leita til viðeigandi sérfræðiaðstoðar vegna mats á ástandi hússins, umfangi skemmda og nauðsynlegum úrbótum. Í framhaldi verði hafinn undirbúningur að nauðsynlegum endurbótum á íþróttahúsinu með það að markmiði að koma í veg fyrir frekari skemmdir.

Samþykkt samhljóða.

4. Tímabundinn leigusamningur um húsnæði
Fyrir liggur tillaga um að gera tímabundinn leigusamning um íbúð að Pálmholti 6. Tilgangurinn er að tryggja húsnæði fyrir sveitarstjóra þar til varanlegt húsnæði hefur verið fundið.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir að ganga til tímabundins leigusamnings um íbúð að Pálmholti 6 og felur skrifstofustjóra að ganga frá samningi fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

5. Uppsögn leigusamninga
Fyrir liggur tillaga um að segja upp leigusamningum vegna íbúðarhúsnæðis í eigu sveitarfélagsins sem leigt er á almennum markaði. Tillagan tekur ekki til félagslegra íbúða eða þjónustuíbúða. Þetta er gert með því markmiði að sveitarfélagið sé ekki að undirbjóða aðra leigusala á almennum markaði.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð samþykkir að segja upp leigusamningum vegna þeirra íbúða sem falla undir framangreint og felur skrifstofustjóra að útbúa og senda leigjendum uppsagnarbréf í samræmi við gildandi uppsagnarfrest.

Samþykkt samhljóða.

6. Staða löggæslu og framtíð lögreglustöðvar á Þórshöfn
Lögreglustöðinni á Þórshöfn hefur verið lokað eftir að mygla greindist í húsnæðinu fyrir um ári síðan. Á sama tíma hefur stöðugildi lögreglumanns á svæðinu verið skert. Sveitarfélagið telur mikilvægt að fá skýr svör um framtíð löggæslu á svæðinu og framtíð lögreglustöðvar. Langanesbyggð er víðfeðmt sveitarfélag og telur sveitarfélagið ekki ásættanlegt að lögregluþjónusta á svæðinu skerðist frekar eða að viðbragðstími lögreglu sé allt að tvær klukkustundir þegar færð á vegum er góð.

Bókun um afgreiðslu: Byggðarráð lýsir yfir áhyggjum af stöðu löggæslu í Langanesbyggð og óskar eftir fundi með lögreglustjóra Norðurlands eystra um framtíð löggæslu á svæðinu.

Samþykkt samhljóða.

7. Erindi til samningsaðila um sértækan byggðakvóta á Bakkafirði.
Vegna fyrri umræðu í byggðaráði er eftirfarandi tillaga að bréfi til samningsaðila um sértækan byggðakvóta lagt fram:

Með bréfi dagsettu 08.05.2026 óskaði Innviðaráðuneytið eftir ítarlegri umsögn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar á byggðakvótakerfinu. Í bréfinu sagði m.a. " Í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga sem hafa notið almenns og/eða sértæks byggðakvóta (Aflamarks Byggðastofnunar) um áhrif þessara veiðiheimilda á sveitarfélagið og einstök byggðarlög innan þess, ef við á. Sérstök áhersla er lögð á að umsagnir endurspegli bæði reynslu af núverandi fyrirkomulagi og afstöðu til framtíðarskipanar kerfisins.

Við gerð umsagnarinnar kom í ljós að engar tölulegar upplýsingar eru til hjá sveitarfélaginu varðandi "reynslu af núverandi fyrirkomulagi" sértæks byggðakvóta á Bakkafirði. Á heimasíðu Byggðastofnunar er hægt að nálgast samninga milli stofnunarinnar og einstakra samningsaðila en þar eru hvorki að finna upplýsingar um það eftirlit sem kveðið er á um í samningum né nokkuð mat á árangri samninga um aflamark.

Í ljósi ofangreinds og með vísan til samnings um sértækan byggðakvóta á Bakkafirði óskar byggðaráð eftir upplýsingum frá samningsaðilum um eftirfarandi:

1. Í 2.gr. samnings er kveðið á um árlegt árangursmat, óskað er eftir afriti af því mati frá upphafi samnings til og með núverandi fiskveiðiári.

2. Í 4.gr. samnings er m.a. fjallað um starfafjölda, óskað er eftir upplýsingum um fjölda einstaklinga með lögheimili á Bakkafirði sem eru í heilsársstarfi við fiskvinnslu hjá samningsaðila. (vegna mats á áhrifum á byggðafestu).

3. Í 5. gr. samnings er fjallað um samkomulag um veiðar og vinnslu sem skilyrði fyrir úthlutun aflamarks, í því á að koma fram mótframlag hvers aðila og verðviðmiðun í uppgjöri milli veiða og vinnslu. Óskað er eftir afriti af þessu samkomulagi. (vegna mats á áhrifum á hafnarsjóð).

4. Í 6. gr. samnings er fjallað um að framsal aflamarks sé óheimilt en jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talin heimil, óskað er eftir upplýsingum um hvernig eftirliti með ákvæðum þessarar greinar er háttað og afriti af gögnum er það varða.

Óski samningsaðilar eftir að svör við einstaka liðum séu bundin trúnaði skal það tekið sérstaklega fram og færð fyrir því rök.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur skrifstofustjóra að koma erindinu á framfæri við hlutaðeigandi aðila.

Samþykkt samhljóða.

7. Niðurfelling reglulegs byggðaráðsfundar 4. september 2026
Fyrir liggur tillaga um að fella niður reglulegan fund byggðaráðs þar sem aukafundur sveitarstjórnar verður haldinn 28. ágúst. Boðað verður til aukafundar ef þörf krefur.

Bókun umafgreiðslu: Tillagan borin fram.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:38.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?