Fara í efni

60. fundur byggðaráðs

07.08.2026 10:00

Fundur í byggðaráði

60. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, föstudaginn 7. ágúst 2026. Fundur var settur kl. 10:00.
Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Mateusz Swierczewski og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Fundargerð

1. Erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga
Þar sem Langanesbyggð er ekki aðili að Samtökum orkusveitarfélaga vill stjórn samtakanna vekja athygli sveitarfélagsins á möguleikanum á aðild og hvetja sveitarstjórn til að kynna sér hvort slík aðild gæti styrkt hagsmunagæslu þess og aukið þátttöku í umræðu og stefnumótun um orkumál.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð þakkar erindið en telur aðild ekki tímabæra að sinni en Langanesbyggð mun endurskoða afstöðu sína fyrir næsta aðalfund samtakanna.

Samþykkt samhljóða.

2. Þátttaka í rafrænu losunarbókhaldi – erindi frá SSNE
Lagt er til að sveitarfélagið samþykki þátttöku í KOLKU, rafrænu og sjálfvirku losunarbókhaldi fyrir sveitarfélög innan SSNE. Verkefnið er fjármagnað til eins árs án beins kostnaðar fyrir sveitarfélagið og mun einfalda vinnu við útreikning kolefnisspors rakstrarins.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð afþakkar þátttöku að þessu sinni.

Samþykkt samhljóða.

3. Orlofssjóður húsmæðra
Samkvæmt lögum um orlof húsmæðra nr. 53/1972, þá er hlutur Langanesbyggðar 89.476 kr. fyrir árið 2026 sem er greitt til Kvenfélagssambands Norður-Þingeyjarsýslu sem nær frá Kelduhverfi til Langanesbyggðar.
Lagt fram til kynningar.

4. Reykjavíkurmaraþon 2026 og Kraftur

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð afþakkar þátttöku og óskar Krafti góðs gengis.

Samþykkt samhljóða.

5. Krafa um leiðréttingu fasteignagjalda 2025–2026
Rekstraraðili gistiheimilisins Bjargs á Bakkafirði hefur óskað eftir leiðréttingu á fasteignagjöldum í kjölfar ákvörðunar Sýslumanns um afturvirka niðurfellingu rekstrarleyfis fyrir árin 2025-2026.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að breyta álagninu frá dagsetningu umsóknar og lýsir jafnframt furðu sinni á ákvörðun sýslumanns um afturvirka niðurfellingu og felur skrifstofustjóra að fá nánari rök fyrir ákvörðun embættisins áður en erindið er afgreitt endanlega.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:50.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?