Fara í efni

59. fundur byggðaráðs, aukafundur

17.07.2026 09:00

Fundur í byggðaráði

59. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, föstudaginn 17. júlí 2026. Fundur var settur kl. 9:00.
Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Mateusz Swierczewski og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Þorri Friðriksson, forstöðumaður áhaldahús, mætti á fund undir 9. lið.

Fundargerð

1. Fundargerð 22. fundar hafnarnefndar frá 15. júlí 2026
Fundargerðin lögð fram.
1.1 Liður 3 úr fundargerð - Erindi frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðs útboðs á nýrri harðviðarbryggju

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð er sammála tillögunni og þeim áherslum sem koma fram hjá hafnarnefnd og felur sveitarstjóra, í samráði við hafnarnefnd, að sækja aftur um fjármagn í austur- vesturþil við næstu endurnýjun samgönguáætlunar.

Samþykkt samhljóða.

2. Fundargerð 84. fundar SSNE frá 30. júní 2026
Fundargerðin lögð fram.

3. Fundargerð 13. verkfundar vegna leikskólalóðar frá 25. júní 2026
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð 14. verkfundar vegna leikskólalóðar frá 13. júlí 2026
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 7. verkfundar vegna grunnskóla frá 13. júlí 2026
Fundargerðin lögð fram.

6. Tillaga um þátttöku í verkefninu Fjólubláir bekkir
Fyrir liggur erindi frá hjúkrunarfræðingum og stjórnendum Nausts þar sem óskað er eftir að Langanesbyggð taki þátt í verkefni Alzheimer-samtakanna Fjólubláir bekkir. Tillagan felur í sér að einn bekkur í eigu sveitarfélagsins verði málaður fjólublár.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð fagnar framtakinu og samþykkir að Langanesbyggð taki þátt í verkefni Alzheimer-samtakanna Fjólubláir bekkir. Skrifstofustjóra er falið að vinna málið áfram í samráði við þjónustumiðstöð.

Samþykkt samhljóða.

7. Umsagnarbeiðni vegna gistileyfis – FarNorth Hostel
Umsagnarbeiðni lögð fram.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir gistileyfið fyrir sitt leyti.

Samþykkt samhljóða.

8. Langanesvegur 25 – reikningur vegna skemmda
Reikningur lagður fram.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir framlagðan reikning að fjárhæð 1.700.000 kr. með vsk., sem er gerður á grunni samkomulags um lokauppgjör

Samþykkt samhljóða.

9. Verksamningur við Rauðanes ehf.
Við yfirferð samningsins var haft samráð við forstöðumann áhaldahús sem mætti á fund byggðaráðs undir þessum lið.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir samninginn og felur skrifstofustjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

10. Afgreiðsla umsókna vegna auglýsingar um starf sveitarstjóra
Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra rann út 24. júní 2026. Byggðaráð og sveitarstjórn Langanesbyggðar hafa lokið yfirferð og úrvinnslu á þeim 6 umsóknum sem bárust og niðurstaða þeirrar yfirferðar er að enginn umsækjenda uppfylli þær kröfur sem gerðar voru. Umsækjendur voru Jóhann Bjarni Einarsson, viðskiptafræðingur og Rut Jónsdóttir, viðskiptafræðingur en fyrir fund byggðaráðs höfðu aðrir umsækjendur dregið umsókn sína til baka.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að hafna innkomnum umsóknum og hefja ráðningarferli að nýju. Byggðaráð Langanesbyggðar þakkar umsækjendum auðsýndan áhuga á starfinu og felur staðgengli sveitarstjóra að tilkynna umsækjendum ákvörðun sína.

Samþykkt samhljóða.


Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:35.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?