Fara í efni

58. fundur byggðaráðs

10.07.2026 10:00

Fundur í byggðaráði

58. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, föstudaginn 10. júlí 2026. Fundur var settur kl. 10:00.

Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Mateusz Swierczewski og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Fundargerð

1. Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi samkomulag við ríkið um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda.
Lagt fram til kynningar.

2. Eyrarvegur 1
Á 62. fundi sveitarstjórnar var ákveðið að fela byggðaráði að vinna málið áfram.

Bókun um afgreiðslu: Ný kjörið byggðaráð er að skoða þetta mál frá öllum hliðum og niðurstöðu mun vænta þegar öll gögn liggja fyrir í síðasta lagi lok ágúst.

Samþykkt samhljóða.

3. Langanesvegur 25
Uppgjör vegna viðgerða.

Bókun um afgreiðslu: Formaður byggðaráðs kynnti drög að samkomulagi við Dawid. Byggðaráð óskar eftir að Dawid sendi reikning með sundurliðunum kostnaði sem verður lagður fyrir næsta fund byggðaráðs til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

4. Verksamningur við Rauðanes ehf.

Á 62. fundi sveitarstjórnar var byggðaráði falið að gera nýjan samning við Rauðanes ehf., sem tekur til viðhaldsverkefna á fasteignum sveitarfélagsins og áframhaldandi framkvæmda við skólabygginguna þegar þær hefjast á ný.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð fór yfir drög að samningi við Rauðanes ehf sem unninn verður áfram í samráði við verktaka og lagður fyrir næsta fund til samþykktar.

Samþykkt samhljóða

5. Íbúakönnun
Samningur var gerður í apríl við Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri vegna viðhorfskönnunar meðal íbúa Langanesbyggðar varðandi hugmyndir um vindorkugarð á Brekknaheiði og framkvæmdir í Finnafirði.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn hefur lagt til breytingar á könnun og á fundi byggðaráðs er að auki gerð breyting á spurningu sem snýr að búsetu í Langanesbyggð. Byggðaráð felur skrifstofustjóra að koma athugasemdum á framfæri við Rannsóknarmiðstöð HA og í framhaldi kynna könnun fyrir íbúum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

6. Röng tilnefning 2. varamanns í fastanefnd
Á 62. fundi sveitarstjórnar voru fastanefndir samþykktar. Tilnefndur var rangur annar varamaður í velferðar- og fræðslunefnd. Tilnefnd var Margrét Guðmundsdóttir en Bergrún Guðmundsdóttir átti að taka það sæti.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir breytinguna.

Samþykkt samhljóða.

7. Önnur mál
Styrkveitingar – yfirferð og afgreiðsla

7.1 . Bakkasystur – Grásleppan 2026
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð óskar eftir lokaskýrslu um verkefnið þar sem fram kemur sundurliðun kostnaðar og aðrir styrkir vegna hátíðarinnar ef við á.

Samþykkt samhljóða.

7.2. Styrkbeiðni frá fræðslu og forvörnum – Heil heim
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð ákveður að styrkja verkefnið ekki að þessu sinni.

Samþykkt samhljóð.

7.3 Minjastofnun
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir stuðninginn og felur skrifstofustjóra að kanna hagkvæman gistimöguleika sem hentar.

Samþykkt samhljóða.

7.4 Umsókn í menningarsjóð
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð ákveður að leggja af stjórn menningarsjóðs og færa hlutverk stjórnar undir atvinnu- og menningarnefnd (áður atvinnu- og nýsköpunarnefnd). Fyrirliggjandi umsókn er vísað til afgreiðslu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:10.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?