57. fundur byggðaráðs
Fundur í byggðaráði
57. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, föstudaginn 26. júní 2026. Fundur var settur kl. 10:00.
Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Mateusz Swierczewski og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Fundargerð
1. Fundargerð Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 1000, dags. 09.06.2026
Fundargerð lögð fram.
2. Fundagerð Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 89, dags. 18.02.2026
Fundargerð lögð fram.
3. Fundagerð Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 90, dags. 18.03.2026
Fundargerð lögð fram.
4. Fundagerð Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 91, dags. 15.06.2026
Fundargerð lögð fram.
5. Aðalfundur Greiðrar leiðar ehf, dags. 09.06.2026
Fundargerð lögð fram.
6. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 248, dags. 03.06.2026
Fundargerð lögð fram.
7. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 248, dags. 03.06.2026
Fundargerð lögð fram.
8. Fundargerð vegna endurgerðar A- og B-hluta grunnskóla nr. 4, dags. 08.06.2026
Fundargerð lögð fram.
9. Fundargerð vegna endurgerðar A- og B-hluta grunnskóla nr. 5, dags. 16.06.2026
Fundargerð lögð fram.
10. Fundargerð vegna endurgerðar A- og B-hluta grunnskóla nr. 6, dags. 23.06.2026
Fundargerð lögð fram.
11. Umsagnarbeiðni um gistileyfi – FarNorth ehf
Umsagnarbeiðni lögð fram.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við veitingu gistileyfis.
Samþykkt samhljóða.
12. Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi vegna bryggjudaga (kátra daga) ásamt dagskrá
Umsagnarbeiðni lögð fram.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis vegna bryggjudaga (kátra daga) á Þórshöfn.
Samþykkt samhljóða.
13. Fyrirhuguð niðurfelling héraðsvega af vegaskrá
Lagt fram til kynningar.
14. Langanesvegur 25 – viðgerðir
D.P. smiður ehf hefur farið fram á að Langanesbyggð greiði 2.526.000 kr. í viðgerðar- og efniskostnað vegna skemmda á leiguhúsnæði sem Langanesbyggð hefur verið með á leigu í rúmt ár.
Bókun um afgreiðslu: Í ljósi þess að það fór ekki fram lokaúttekt á húsnæðinu þá felur byggðaráð formanni nefndarinnar að ræða við Dawid og leggja drög að samkomulagi fyrir næsta fund.
Samþykkt samhljóða.
15. Umsókn um hljóðfæranám við Tónlistaskólann á Akureyri
Erindi hefur borist frá Tónlistaskóla Akureyrar vegna umsóknar nemanda frá Þórshöfn sem hyggst stunda hálft nám við skólann. Farið er fram á að sveitarfélagið greiði námskostnað nemandans. Kostnaður nemur samtals 449.163.- Sveitarfélagið getur sótt um endurgreiðslu til Jöfnunarsjóðs fyrir allt að 50% af námskostnaði.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
16. Trúnaðarmál – starfsmannamál
Farið var yfir umsóknir um starfs sveitarstjóra.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:08.