56. fundur byggðaráðs
Fundur í byggðaráði
56. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, föstudaginn 12. júní 2026. Fundur var settur kl. 14:30.
Mætt voru: Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðaráðs, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sigurður Þór Guðmundsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Fundargerð
1. Fundargerð 21. fundar hafnarnefndar frá 11.06.2026
Fundargerð lögð fram.
1.1) Bókun hafnarnefndar um endurskoðun á kvótakerfi.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur skrifstofustjóra að senda umsögnina í nafni Langanesbyggðar.
Samþykkt samhljóða.
2. Fundagerð verkfundar nr. 11 um endurgerð leikskólalóðar frá 26.05.2026
Fundargerðin lögð fram.
3. Fundargerð verkfundar nr. 2 um endurgerð A og B hluta grunnskóla frá 21.05.2026
Fundargerðin lögð fram.
4. Fundargerð verkfundar nr. 3 um endurgerð A og B hluta grunnskóla frá 29.05.2026
Fundargerðin lögð fram.
5. Drög að samningi um rekstrarráðgjöf
Lögð fram drög að samningi við Björn Ingimarsson vegna úttektar á rekstri sveitarfélagsins.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir samninginn og felur staðgengli sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Langanesbyggðar.
Samþykkt samhljóða.
6. Önnur mál
6.1) Erindi barst frá húseiganda með ósk um að farið væri yfir hvort álagning fasteingagjalda væri réttmæt.
Bókun um afgreiðslu: að mati byggðaráðs er álagningin í samræmi við gildandi lög og reglur og álagningarákvæði sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:55.