55. fundur byggðaráðs
Fundur í byggðaráði
55. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn 28. maí 2026. Fundur var settur kl. 12:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Fundargerð
1. Fundargerð 26. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 12.05.2026
Fundargerðin lögð fram.
2. Fundargerð 10. fundar Ungmennaráðs frá 05.03.2026.
Fundargerðin lögð fram.
2.1. Liður 4 í fundargerð.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra falið að koma ábendingunni um ástand vegstika á afleggjurum í sveitinni til Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða.
3. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarf. nr. 998 frá 8.05.2026
Fundargerðin lögð fram.
4. Fundargerð 83. fundar stjórnar SSNE frá 07.05.2026
Fundargerðin lögð fram.
5. Fundargerð vorfundar almannavarnarnefndar frá 05.05.2026
05.1 Ársreikningur almannavarnarnefndar fyrir 2025.
Fundargerð og ársreikningur lagður fram.
6. Ársreikningur Brákar hses. húsnæðisfélags fyrir 2025
Ársreikningurinn lagður fram.
7. Erindi frá Dalá ehf vegna staðsetningar á gámi
Farið er fram á að settur verði niður gámur á gámasvæði Langanesbyggðar samkvæmt meðfylgjandi bréfi.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarfélagið hefur ekki farið fram á að eignarhluta meðeigenda verði afsalað til sveitarfélagsins. Meðeigendur geta leitað til síns tryggingafélags varðandi bætur vegna altjónstjóns sem varð á húsinu líkt og sveitarfélagið hefur gert varðandi sinn hluta. Húsið var ekki tryggt gagnvart því tjóni sem varð á því og ber sveitarfélagið því tjón sem varð á hluta þess í húsinu og sömuleiðis eigendur annars hluta hússins.
Þar sem mikil hætta stafar frá rústum hússin mun sveitarfélagið beita sér fyrir því að það verði rifið og hefur málið verið til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd sem hefur samþykkt niðurrif og byggingafulltrúa tilkynnt sú ákvörðun.
Farið er fram á að meðeigendur að húsinu taki þátt í kostnaði við niðurrif í hlutfalli við eignarhlut. Þó bíður Langanesbyggð meðeigendum að falla frá þeirri kröfu gegn því að þeir afsali sér lóðarheimildum.
Eigendum hluta hússins er hinsvegar veitt heimild fyrir staðsetningu gáms á gámasvæði sveitarfélagsins. Frágangur hans er alfarið í höndum eigenda samkvæmt „Gjaldskrá og reglum fyrir geymslusvæði í Langanesbyggð“ frá 11. nóvember 2021 og eru á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
8. Beiðni um styrk frá „Kátum dögum“ vegna 2026
Beiðni um styrk frá „Kátum dögum“ - ekki er tiltekin ákveðin fjárhæð.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að fela skrifstofustjóra að veita styrk í samræmi við fjárheimildir.
Samþykkt samhljóða.
9. Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum hefur send nefndarsviði Alþingis umsögn vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (Jöfnunargjald) – 596 mál.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarfélagið Langanesbyggð tekur undir umsögn SSKS í umsögninni og felur sveitarstjóra að senda samtökunum bókun sveitarstjórnar ásamt nefndarsviði Alþingis.
Samþykkt samhljóða.
10. Ársskýrsla Norðurhjara fyrir árið 2025
10.1 Ársreikningur Norðurhjara.
Ársskýrsla og ársreikningur lögð fram.
11. Kynning á Berginu – ráðgjafar og stuðningsþjónustu fyrir ungt fólk
11.1 Drög að samstarfs milli sveitarfélaga á NE og Bergsins Headspace. Farið er fram á framlag samkvæmt niðurlagi í viðauka 1 við samninginn kr. 87.575.- frá 01.07.2026 – 01.07.2027, kr. 91.399.- fyrir sama tímabil 2027-2028 og 104.417.- fyrir 2028-2029.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir samninginn til þriggja ára og felur sveitarstjóra að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða.
12. Beiðni um rekstrarframlag til Bjarmahlíðar
Lögreglustjórinn á NE hefur sent sveitarfélögum beiðni um rekstrarframlag til Bjarmahlíðar. Ný tillaga sem byggir á föstu framlagi miðað við grunntölu og svo fjölda íbúa. Þar með lækkar framlag Langanesbyggðar úr 400 þúsund á ári í 357.722.-
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að veita umbeðið framlag.
Samþykkt samhljóða.
13. Bréf til sveitarfélaga vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfi
13.1 Yfirlit yfir skýrslur sem varða endurskoðun á byggðakvótakerfinu.
13.2 Atriði til umsagnar.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð vísar málinu til hafnarnefndar og felur nefndinni að gera drög að umsögn um frumvarpið. Frestur til að skila umsögn er til 16. júní 2026.
Samþykkt samhljóða.
14. Viðræður við Björgunarsveitina Hafliða um kaup á húsum sveitarinnar
Sveitarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við sveitina. Fyrir liggur verðmat á húsunum ásamt byggingakostnaði nýs húss. Breyting á deiliskipulagi er í ferli og lýkur í júní.
Bókun um afgreiðslu: Málinu vísað nýrrar sveitarstjórnar til ákvörðunar.
Samþykkt samhljóða.
15. Menntastefna Langanesbyggðar drög – 2026-2030
15.1 Bréf frá formanni velferðar og fræðslunefndar vegna skýrslugerðar.
15.2 Tilboð í uppsetningu á skýrslur frá Líparat.
Lögð fram drög að menntastefnu Langanesbyggðar 2026-2030.
Bréf frá formanni nefndarinnar þar sem farið er fram á fjárframlag til að búa til notendavænt skjal fyrir kennara og foreldra til að vinna með.
Tilboðið er frá Líparat og hljóðar upp á 167.648.-
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að koma lokadrögum menntastefnunnar í notendavænt form samkvæmt meðfylgjandi tilboði.
Samþykkt samhljóða.
16. Ársskýrsla Langanesbyggðar 2025
Ársskýrslan lögð fram.
Bókun um afgreiðslu: Ársskýrsla 2025 er hér með lögð fram og verður gerð aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins. Með von um að slík skýrsla verði gerði árlega.
Nú er síðasti fundur þessa byggðaráðs. Er starfsmönnum sveitarfélagsins færðar þakkir fyrir gott samstarf. Sveitarstjóri lýkur senn störfum og er honum þakkað samstarfið á kjörtímabilinu.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 13:25.