Fara í efni

53. fundur byggðaráðs

22.04.2026 12:00

Fundur í byggðaráði

53. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, miðvikudaginn 22. apríl 2026. Fundur var settur kl. 12:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Til fundarins mætti Karen Konráðsdóttir til að svara spurningum varðandi 7. lið.
Til fundarins mætti Sigurbjörn V Friðgeirsson forstöðumaður Íþróttahúss undir liðnum önnur mál.

Fundargerð

1. Fundargerð vinnuhóps um grunnskólann nr. 3 frá 02.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

2. Fundargerð vinnuhóps um grunnskólann nr. 4 frá 19.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

3. Fundargerð vinnuhóps um grunnskólann nr. 5 frá 26.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð vinnuhóps um grunnskólann nr. 6 frá 10.04.2026
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð verkfundar nr. 1 um endurgerð A og B hluta frá 10.04.2026
     05.1 Verkáætlun fyrir endurgerð A og B hluta.
      Nýjasta útgáfa Verkáætlunar lögð fram.
Framkvæmdum um lagfæringar á A og B hluta vindur fram, áætlanir eru í stöðugri endurskoðun, eftir því sem ástand byggingarhluta kemur í ljós. Sveitarstjórn er búin að samþykkja um að rífa C hluta í athugun er hvort tilefni sé að endurskoða þá ákvörðun. Stefnt er að því að A og B hluti verði tilbúnir til notkunar í ágúst og framkvæmdum þessa árs þá lokið.

6. Fundargerð 9. fundar Ungmennaráðs frá 05.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

7. Leigu- og rekstrarsamningur vegna Þórsvers, endurnýjun - drög.
Leigutaki Þórsvers hefur farið fram á breytingar á samningnum um leigu og rekstur. Leigutaki hefur sett upp verðskrá vegna þrifa og undirbúnings vegna þeirra sem hafa frí afnot af sal samkvæmt skilgreiningu í 5. grein. Í 6 grein er fjallað um búnað og framkvæmdir sem leigusali og leigutaki munu gera með sér sérstakt samkomulag um. Þá eru gerðar breytingar vegna leigugreiðslu og greiðslu fyrir rafmagn í 1. grein samningsins í ljósi reynslu af rekstri.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

8. Erindi frá félagi eldri borgara (ódags.)
Í erindi til byggðaráðs fer félag eldri borgara fram á búnað til fjarfunda í húsnæði þeirra. Um yrði að ræða kaup á tölvu til að tengjast fjarfundi.
Þá óskar félagið eftir lagfæringu á bílastæði (stækkun) fyrir framan húsið.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur skrifstofustjóra að útvega búnað til fjarfundar og kanna hvernig hægt sé að laga bílastæði.

Samþykkt samhljóða.

9. Líkgeymsla á Þórshöfn – opið bréf frá félagasamtökum og stofnunum í Langanesbyggð.
Opið bréf til sveitarfélagsins varðandi fyrirkomulaglíkgeymslu og líksnyrtingar. Bréfið er ritað af starfsfólki sem hefur sinnt líksnyrtingu og félagasamtökum. Bent er á úrræði í þessum málum.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur sveitarstjóra að ræða við forstjóra HSN um að fá að staðsetja slíka aðstöðu hliðina á heilsugæslunni. Það er einróma mat byggðaráðs að sú staðsetning sé best og engin önnur staðsetning taki henni fram. Byggðaráð fer að sinni ekki fram á neina aðra skuldbindingu en að heimila staðsetninguna á sinni lóð.

Samþykkt samhljóða.

10. Skipun fulltrúa í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd Loftlagsstefnu NE.
Óskað er eftir skipun fulltrúa sveitarfélagsins í hópinn.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð mælir með því að Almar Marinósson umhverfisfulltrúi verði fulltrúi sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

11. Umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum um drög að breytingum á fyrirkomulagi dreifbýlisgjaldskrár.
Umsögnin lögð fram til kynningar.

12. Umsögn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum um breytingu á raforkulögum.
Umsögnin lögð fram til kynningar.

13. Umsagnarbeiðni frá Bakkasystrum um tækifærisleyfi til vínveitinga.
Viðburðurinn er áætlaður 6. júní 2026.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis til áfengisveitinga til handa Bakkasystrum ehf. kt. 420322-2320 sem fara mun fram 6 júní 2026.

Samþykkt samhljóða.

14. Bréf Ísfélags til Langanesbyggðar vegna fráveitu.
Í bréfinu óskar Ísfélagið eftir viðræðum við sveitarfélagið um þá kosti sem eru í stöðunni varðandi afkastaaukningu fráveitukerfisins með hagsmuni beggja aðila að leiðarljósi.

Bókun um afgreiðslu: Forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar og sveitarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn Ísfélags um viðunandi lausn.

Samþykkt samhljóða.

15. Önnur mál
     a) Fagleg verkefni forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar rædd.

Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi sliti kl. 13:25.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?