52. fundur byggðaráðs 30.03.2026
Fundur í byggðaráði
52. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, mánudaginn 30. mars 2026. Fundur var settur kl. 17:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson oddviti (fjarfundi), Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir (fjarfundi), Júlíus Sigurbjartsson, Björn Sigurður Lárusson (fjarfundi) og Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Almar Eggertsson hönnuður sat fundinn í fjarfundi og útskýrði hugmyndirnar.
Fundargerð
1. Tillöguteikning – færsla bókasafns, tónlistaskóla og starfsmannaaðstöðu.
01.1 Nýjar hugmyndir um matsal – tillöguteikning.
Lagðar hafa verið fram nýjar hugmyndir um að færa bókasafn, tónlistaskóla og starfsmannaaðstöðu á þeim teikningum sem liggja fyrir fundinum. Einnig á skjali 01.1 Nýjar hugmyndir um matsal og eldhús.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur hönnuði að halda áfram vinnunni án matsalar og eldhúss, felur honum þó að gera greinagerð, í samráði við sveitarstjóra, hve fyrirhugaður kostnaður og möguleg stækkun yrði til þess að matsalur og matreiðsla komist fyrir innan nýbyggingarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða
Fundi sliti kl. 18:10.