Fara í efni

50. fundur byggðaráðs

12.02.2026 12:00

Fundur í byggðaráði

50. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, fimmtudaginn 12. febrúar 2026. Fundur var settur kl. 12:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir skrfstofustjóri sem ritaði fundargerð.

Undir 5. lið mætti Almar Eggertsson frá Faglausn til að svara spurningum varðandi niðurstöður rannskókna á myglu í grunnskólanum.

Undir 4. lið mætti Almar Marinósson umhverfisfulltrúi til samtals vegna tillögu um fyirkomulag rekstrar og fyrstu rekstraráætlun ásamt tillögu að gjaldskrá sorpmála í Langanesbyggð 2026.

Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.

Oddviti fer fram á að dagskrárliðum verði breytt þannig að fyrst verði tekið fyrir 5. mál á dagskrá og þvi næst 4. liður. Dagskráin óbreytt að öðru leiti.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð

1. Fundargerð stjórnar sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 88 frá 21.01.2026.
Fundargerðin lögð fram.

2. Fundargerðir verkfunda 7-10 vegna lóðar leikskólans Barnaból.
Fundargerðirnar lagðar fram.

3. Ósk um breytingar og/eða endurskoðun á samningi um Þórsver og mötuneyti.
     03.1 Þórsver – samantekt leigutaka.
     03.2 Samningur um leigu á Þórsveri.
     03.3 Samningur um rekstur mötuneytis.
Leigutaki Félagsheimilisins Þórsver hefur lag fram óskir um breytingar og/eða endurskoðun á samningi um leigu og um rekstur mötuneytis ásamt athugasemdum. Sveitarstjóri hefur farið yfir efnið og leggur fram tillögu til lausnar á hverju atriði fyrir sig.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra falið að ræða nánar við leigutaka um hverja tillögu fyrir sig og skila niðurstöðum fyrir næsta fund byggðaráðs ásamt kostnaðaráætlun.

Samþykkt samhljóða.

4. Tillaga að fastráðningu starfsmanns í umhverfismál.
     04.0 Samantekt úrgangsmála 2026.
     04.1 Áætlun um fyrirkomulag rekstrar og fyrstu drög rekstraráætlunar.
     04.2 Drög að gjaldskrá sorpmála í Langanesbyggð 2026.
     04.3 Drög að gjaldskrá einstaklinga á móttökustöð.
Sveitarstjóri leggur fram tillögu um fastráðningu umhverfisfulltrúa frá og með 1. mars. Jafnframt leggur umhverfisfulltrúi fram fyrstu drög áætlunar um rekstur og fyrirkomulag sorpmála ásamt drögum að gjaldskrám.

Liður 4. Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir áframhaldandi ráðningu umhverfisfulltrúa og felur sveitarstjóra og skrifstofustjóra að gera lýsingu á starfssviði og starfslýsingu fyrir starfið samhliða stofnun B sjóðs félags og samvinna verði höfð við forstöðumann Þjónustumiðstöðvar um verkaskiptingu.

Samþykkt samhljóða.

Liðir 04.1-04.3 Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur sveitarstjóra og umhverfisfulltrúa að hefja undirbúning að B sjóðs félagi sem falið verður að sjá um sorpmál og umhverfismál tengd þeim. Með það að markmiði að sveitarsjóður greiði ekki með málaflokknum og hann reki sig. Ekki verður gert ráð fyrir söfnun á dýrahræjum.

Samþykkt samhljóða.

5. Niðurstöður rannsókna á grunnskólanum A og B hluta. Næstu skref – yfirlit heildarkostnaðar.
     05.1 Niðurstöður rakamælinga í gólfplötu.
     05.2 Kostnaður á viðgerð A og B án gólfbrota og án útveggja. Samantekt..
     05.3 Kostnaður á viðgerð A og B án gólfbrota og án útveggja. Sundurliðun.
     05.4 Kostnaður, rif og nýbygging 2 hæðir. Samantekt.
     05.5 Kostnaður, rif og nýbygging 2 hæðir. Sundurliðun.
Faglausn hefur lagt fram niðurstöður hlutfallsrakamælinga í grunnskólanum. Niðurstöður eru jákvæðar gagnvart byggingum A og B ásamt anddyri (elsta hluta skólans sem gert var við árið 2016). Einnig eru lögð fram frumdrög að kostnaðaráætlun vegna viðgerða á þessum hluta skólans og hugsanlegu niðurrifi byggingar C og nýbyggingu á þeim grunni.
Til viðræðna mætti Almar Eggertsson frá Faglausn.

Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð felur sveitarstjóra, í samráði við hönnuð og starfshóps um endurbætur, að hefja endurbætur á A hluta, B hluta og anddyri. Samkvæmt framlagðri áætlun (viðauki 2) sem hljómar uppá tæpar 190.000.000 kr. Jafnframt að hefja undirbúning að ca 800 fm nýbyggingu, rifum á C hluta og fjarlægja D hluta. Markmiðið er að A og B verði tækt til kennslu á komandi hausti og byggingarreitur undirbúinn fyrir skólabyrjun. Framkvæmdir verði stilltar af innan núverandi fjárhagsáætlunar. Í nýbyggingu skal auk skólarýma vera rými fyrir almennisbókasafn og aðstaða fyrir menningarstarf. Áfram verður gert ráð fyrir mötuneyti í Þórsveri.

Samþykkt samhljóða.

6. Drög a frumvarpi vegna flutnings og eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.
Breytingarnar fela í sér umfangsmikinn flutning verkefna og valds frá kjörnum fulltrúum í heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til ríkisins. Til að mynda flytur frumvarpið öll sértæk þvingunarúrræði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (áminningar, dagsektir, stöðvun framkvæmda o.s.frv.) frá sveitarfélögum til ríkisins (Umhverfis- og Orkustofnunar).
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á sveitarfélögin. Þar segir orðrétt:
„Viss óbein neikvæð áhrif á sveitarfélög kunna að felast í því að sérfræðiþekking sem hingað til hefur verið bundin við sveitarstjórnarstig flytjist að hluta til ríkisins [...]. Þá mun tiltekinn einskiptiskostnaður falla á sveitarfélög, t.d. vegna mögulegra biðlaunagreiðslna o.fl.“
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til þess að kynna sér efni frumvarpsins vel og skila inn umsögnum í samráðsgátt fyrir 17. febrúar n.k.

Bókun um afgreiðslu: Langanesbyggð beinir því til stjórnar SSNE að samræma sjónarmið sveitarfélaga á NE og senda sameiginlega umsögn um málið. Kjarni þess verði að Heilbrigðiseftirlitið verði heima í héraði.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða

Fundi sliti kl. 14:20.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?