49. fundur byggðaráðs 13.01.2026
Fundur í byggðaráði
49. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, þriðjudaginn 13. janúar 2026. Fundur var settur kl. 12:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir skrfstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Oddviti leitaði eftir heimild til afbrigða frá boðaðri dagskrá samkvæmt neðangreindum tillögum:
A) Oddviti leggur til að dagskrá breytist þannig að fyrst verði tekinn fyrir liður 11 þar sem fulltrúar björgunarsveitarinnar Hafliða mæta til viðræðna.
B) Að því loknu verði tekin fyrir liður 9 sem er skýrsla umhverfisfulltrúa þar sem hann svarar spurningum varðandi þær leiðir sem settar eru fram í skýrslunni.
C) Við lið 10 bætist umsögn vegna beiðni um veitingaleyfi fyrir Langanesbitann, Fjarðarvegi 2.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð
1. Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 93 frá 10.12.2025.
Fundargerðin lögð fram.
2. Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 87 frá 08.12.2025
Fundargerðin lögð fram.
3. Áform um breytingar á kosningalögum, kosning til Alþingis, jöfnun atkvæðisréttar.
Áformum dómsmálaráðuneytis um breytingar á kosningalögum nr. 112/2021
Lagt fram til kynningar.
4. Reglugerð 1212 2015 fskj. 1 um breytingu á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
04.1 Fskj. 1 við reglugerð 1212 2015 um breytingu á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
5. Úthlutun byggðakvóta til byggðalaga á fiskveiðiárinu 2025-2026
05.1 Leiðbeiningar um sérreglur byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2025-2026.
05.2 Tillögur Langanesbyggðar vegna úthlutunar byggðakvóta 2025-2026.
Innviðaráðuneytið hefur úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2025-2026. Engin breyting er gerð á úthlutuninni frá fiskveiðiárinu 2024-2025. Einnig eru sendar leiðbeiningar um sérreglur byggðakvóta. Tillaga að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun þarf að berast ráðuneytinu fyrir 19. janúar.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir meðfylgjandi tillögu að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 (sjá fskj. 05.2).
Samþykkt samhljóða.
6. Umsókn um styrk frá ADHD samtökunum vegna fræðslu
06.1 Almenn greinargerð um starfsemi ADHD samtakanna.
ADHD samtökin fara fram á styrk vegna fræðslu um ADHD á árinu 2026. Farið er fram á 100 – 500 þúsund.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð telur sér ekki fært að verða við ósk ADHD samtakanna um styrk vegna fræðslu fyrir árið 2026.
Samþykkt samhljóða.
7. Beiðni Markaðsstofu Norðurlands fh. Flugklasans til sveitarstjórna um fjárframlag.
Farið er fram á fjárframlag að upphæð kr. 500 á íbúa. Íbúafjöldi 1. janúar 2025 var skv. Hagstofu 560 þannig að framlagið yrði 280.000.-
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir framlag til Flugklasans fyrir árið 2026 kr. 280.000.-
Samþykkt samhljóða.
8. Útreikningur á árlegu framlagi til MMÞ 2026 og nýir útreikningar vegna viðgerðar á þaki.
08.1 Samantekt á heildarframlagi, mánaðargreiðslum, heildargreiðslum og hlutdeild í viðgerð á þaki.
Á 37. fundi byggðaráðs þann 1. apríl s.l. var heimiluð fjárveiting sem hluti Langanesbyggðar í viðgerð á þaki MMÞ. Kostaður Langanesbyggðar var þá metinn kr. 3.889.604.-. Viðgerð hefur ekki farið fram og nýtt tilboð borist og þar er hlutur Langanesbyggðar kr.3.460.414.- og miðað við íbúafjölda 589 um áramót 2025/2026.
Ennfremur hefur MMÞ sent útreikninga á hlutdeild sveitarfélaga í rekstrarframlagi þeirra fyrir árið 2026. Þar er heildarframlag Langanesbyggðar fyrir árið 2026 m.v. íbúðafjölda kr. 8.814.879.- og mánaðarleg greiðsla kr. 734.573.-
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir þátttöku í viðgerð á þaki MMÞ kr. 3.460.414.- sem er leiðrétt tala frá síðustu samþykkt byggðaráðs þann 1. apríl 2025. Þá samþykkir byggðaráð útreikninga á hlutdeild Langanesbyggðar í rekstri MMÞ fyrir árið 2026 sem er 8.814.879.-.
Samþykkt samhljóða.
9. Skýrsla umhverfisfulltrúa um úrgangsmál í Langanesbyggð ásamt tillögum.
Skýrslan lögð fram til kynningar.
Umhverfisfulltrúi mætti á fund byggðaráð og sat fyrir svörum um efni skýrslunnar.
10. Beiðni um umsagnir vegna veitingu tækifærisleyfis til áfengisveitinga á Þorrablóti 31.01.2026 og vegna veitingaleyfis fyrir veitingastaðinn Langanesbitann Fjarðarvegi 2.
Þorrablótsnefnd Þórshafnar og nágrennis kt. 630114-0710 fer fram á umsögn vegna tækifærisleyfis til áfengisveitinga á Þorrablóti sem haldið verður í Íþróttamiðstöðinni VER 31.01.2026.
Veitingastaðurinn Langanesbitinn kt. 480405-0720, Fjarðarvegi 2 fer fram á umsögn vegna útgáfu veitingaleyfis.
10.1 Beiðni um umsögn vegna útgáfu tækifærisleyfis vegna Þorrablóts 31.01.2026
10.2 Beiðni um umsögn vegna útgáfu veitingaleyfis fyrir veitingastaðinn Langanesbitann Fjarðarvegi 2.
10.3 Teikning af útisvæði hjá Langanesbitanum.
Bókun um afgreiðslu v/ Þorrablóts: Byggðaráð samþykkir fyrir sitt leyti veitingu tækifærisleyfis vegna áfengisveitinga á Þorrablóti Þórshafnar og nágrennis þann 31.01.2026.
Samþykkt samhljóða.
Bókun um afgreiðslu veitingaleyfis vegna Langanesbitans: Byggðaráð samþykkir fyrir sitt leiti að gefið verði út veitingaleyfi fyrir Langanesbitann ehf. kt. 480405-0720 Fjarðarvegi 2.
Samþykkt samhljóða.
11. Bréf björgunarsveitarinnar Hafliða með ósk um viðræður vegna húsnæðismála
Björgunarsveitin fer fram á viðræður um húsnæðismál sveitarinnar í ljósi breytts skipulags hafnarinnar.
Til viðræðna við byggðaráð mættu fh. Björgunarsveitarinnar Þorbergur og Þorsteinn.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða
Fundi sliti kl. 13:25