39. fundur byggðaráðs
Fundur í byggðaráði
39. fundur byggðaráðs, Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, miðvikudaginn 28. maí 2025. Fundur var settur kl. 12:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson oddviti, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Gestir fundarins eru: Ungmennaráð vegna 5. liðar og skólastjóri Grunnskólans og forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar vegna 8. liðar.
Fundargerð
1. Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 15.04.2025
Fundargerðin lögð fram
2. Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 07.05.2025
Fundargerðin lögð fram
3. Þinggerð ársþings SSNE 2-3 apríl 2025
Þinggerðin lögð fram
4. Stjórn samtaka sjávarútvegsfélaga - umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald nr. 145/2018, 351 mál
04.1 Drög að umsögn samantekt eftir fund með þingmönnum 16. maí 2025.
04.2 Samantekt KPMG gagna vegna umsagnar um frumvarp um breytingu á lögum um veiðigjald.
Langanesbyggð hefur þegar lagt fram umsögn um frumvarpið sem lögð var fram fyrir byggðaráð og staðfest í sveitarstjórn.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarfélagið Langanesbyggð styður umsögn samtaka sjávarútvegsfélag um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald nr. 145/2018, 351 mál.
Samþykkt samhljóða.
5. Fundargerð 7. fundar ungmennaráðs frá 13.05.2025
05.1 Byggðabragur unga fólksins – verkfærakista lokaeintak.
Lagt fram til kynningar að beiðni ungmennaráðs.
6. Skýrsla NGI um aðgerðir vegna mengunar á Heiðarfjalli.
06.0 Glærukynning á aðgerðaráætlun fyrir landeigendur.
06.1 Skýrsla Geislavarna ríkisins um geislavarnir á Heiðarfjalli 2023.
Norska fyrirtækið NGI hefur lokið rannsóknum sínum á Heiðarfjalli. Umhverfis- og Orkustofnun hefur lagt fram meðfylgjandi aðgerðaráætlun sem lögð verður fyrir ráðuneyti umhverfis- og orkumála þegar kostnaðaráætlun liggur fyrir í september. Þá þarf að fylgja málinu eftir við fjárlaganefnd til að fá fjárveitingu til hreinsunar.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð fagnar þessum áfanga og mun liðsinna stofnuninni í því að fá fjárveitingu til verksins á fjárlagaárinu 2026.
Samþykkt samhljóða.
7. Tilkynning frá sýslumanni NE vegna viðveru fulltrúa sýslumanns á Þórshöfn.
Tilkynningin lögð fram til upplýsinga.
8. Staðfest mygla í Þórshafnarskóla, tillögur að næstu skrefum.
08.1 Staðfest mygla – tillögur að næstu skrefum.
08.1 Niðurstöður Náttúrufræðistofnunar á sveppagreiningar Langanesvegi 20 sem tekin var 19. maí.
08.2 Niðurstöður sýna sem tekin voru 5. maí.
Greinst hefur mygla á því svæði sem merkt er á meðfylgjandi grunnmynd. Lögð framtillaga að næstu skrefum. Unnið er samhliða að verk- og kostnaðaráætlun.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð leggur til að rými til kennslu verði fundin nýr staður til bráðabirgða. Gerð verði fýsileikakönnun á þeim möguleikum sem koma til greina við endurbætur/nýbyggingu skólans. Byggðaráð heimilar forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar að finna samstarfsfólk til að sinna verkefninu. Skólastjóra og sveitarstjóra falið að finna hugmyndir sem hafa komið upp í gegn um tíðina og skoða hvort hægt er að nýta einhverja þeirra.
Samþykkt samhljóða.
9. Nýting jarðhita til húsahitunar í Langanesbyggð. Verkefnalýsing, áhersluatriði, þekking á jarðhita svæðisins, tímaáætlun og kostnaðaráætlun.
Lögð fram umsókn og fylgigögn vegna umsóknar um jarðhitaleit í Langanesbyggð. Lagt fram til kynningar
10. Umsögn Langanesbyggðar um kerfisáætlun 2025-2034
Langanesbyggð hefur lagt fram meðfylgjandi umsögn um Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034
Bókun um afgreiðslu: Í Kerfisáætlun Landsnets er fjallað um þau verkefni sem áformuð eru á árabilinu 2025-2034. Í meðfylgjandi langtímaáætlun er farið nánar yfir sviðsmyndir og verkefni, m.a. yfirstandandi greiningarvinnu Landsnets og Rarik sem snýr að framtíð raforkuflutnings- og dreifingar á Norðausturlandi.
Byggðarráð Langanesbyggðar telur brýnt að þeirri vinnu verði lokið hið fyrsta, þannig að hægt sé að færa aðkallandi verkefni inn á áætlun Landsnets, í takt við niðurstöður og til samræmis við stefnu stjórnvalda. Staða raforkumála á þessu landshorni er grafalvarleg og úr því verður að bæta.
Opinber stefna stjórnvalda (um uppbyggingu flutningskerfis raforku) kveður á um að jafnræðis sé gætt milli landsvæða þegar kemur að afhendingaröryggi raforku. Þá eigi að horfa til þeirra svæða sem eru lakar sett en önnur, að því er raforkumál varðar. Einnig er lögð áhersla á að flutningskerfið mæti þörfum fyrir aukin orkuskipti í samgöngum og haftengdri starfsemi, m.a. að því er varðar innviði fyrir rafbíla, notkun raforku í höfnum og raforku til fiskimjölsbræðslna. Að endingu kveður stefna stjórnvalda á um að allir afhendingarstaðir Landsnets verði tvítengdir fyrir 2040.
Líkt og fram kemur í drögum að kerfisáætlun þá á enn eftir að tvítengja Kópasker og Vopnafjörð og er fyrirkomulag þess eitt af því sem er til skoðunar í fyrrnefndri greiningu Landsnets og Rarik. Í langtímaáætlun eru þessar tvítengingar kynntar sem „fyrirséðar þarfir til lengri tíma“ og sömuleiðis að Þórshöfn gæti þá orðið nýr afhendingarstaður í kerfinu, út frá sömu forsendum.
Byggðarráð telur afar brýnt að þessi verkefni rati strax inn á tímasetta áætlun, og í kjölfarið inn á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar. Þá sé brýnt að flýta framkvæmdum eins og frekast er kostur, enda er aukin flutningsgeta raforku nauðsynleg forsenda annarrar uppbyggingar á svæðinu. Ekki sé hægt að tryggja á annan hátt: Samkeppnishæfni svæðisins; orkuskipti og rafvæðingu fiskiðnaðar; sjálfbærar forsendur fyrir sókn nýrra atvinnuvega; og afhendingaröryggi á Norðausturhorninu.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 14:00