Fara í efni

Vinnufundur Markaðsstofu Norðurlands á Þórshöfn

Fréttir

Markaðsstofa Norðurlands heldur vinnufundi á Norðurlandi í janúar. Á Þórshöfn verður fundurinn haldinn fimmtudaginn 13. janúnar kl. 13 - 15 í Þórsveri.
Tilgangur fundanna er að efla samstarf á milli ferðaþjónustuaðila og útbúa pakka til þess að ýta undir vetrarferðaþjónustu á svæðinu. Einnig verður farið í grunnatriði markaðssetningar á samfélagsmiðlum og hvað hafa þarf í huga við notkun þeirra.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundina. Skráning er hér: https://www.northiceland.is/is/mn/skraning

Mælt er með því að gestir fari í hraðpróf fyrir fundina en ekki verður þó gerð krafa um slíkt. Einnig biðjum við þátttakendur um að mæta ekki ef þeir finna fyrir minnstu einkennum Covid-19.