Fara í efni

Viðgerðir á Fjarðarvegi og Langanesvegi

Fréttir

Við færumst nær ákvörðun um gatna- og lagnaframkvæmdir á Þórshöfn, en kostnaðar- og framkvæmdaáætlun liggur á borði Vegagerðarinnar. Skv. því plani er áætlað að Vegagerðin hefji viðgerðir á Fjarðarvegi og Langanesvegi í ágúst nk. Þá þurfa lagnaviðgerðir að vera afstaðnar. Gert er ráð fyrir að hlutdeild Langanesbyggðar í kostnaði við endurnýjun lagna undir Langanesvegi, frá Bakkavegi á móts við Bjarg að Löghæð, með lagfæringum á svonefndri „hótelbeygju“ og malbikslögn inn á Bakkaveg að Hafnarvegi verði á bilinu 22-25 m.kr.