Fara í efni

Verkefnisstjóri Betri Bakkafjarðar

Fréttir
Ólafur Áki Ragnarsson og Þorkell Gíslason undirrita samninga
Ólafur Áki Ragnarsson og Þorkell Gíslason undirrita samninga

Verkefnisstjóri og verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar. Á myndina vantar Hildi Jönu Gísladóttur

Verkefnisstjóri og verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar. Á myndina vantar Hildu Jönu Gísladóttur

 

Föstudaginn 5. júlí hittist verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar á fundi á Bakkafirði. Verkefnið er hluti af Brothættum byggðum, verkefni Byggðastofnunar og samstarfsaðila.
Á fundinn mætti Ólafur Áki Ragnarsson sem fyrir skömmu var ráðinn verkefnisstjóri í verkefninu. Ásamt því að bjóða Ólaf Áka velkominn til starfa var á fundinum rætt um mótun framtíðarsýnar og markmiða fyrir verkefnið. Ólafur Áki mun á næstu vikum fylgja þeirri umræðu eftir og leggja drög að verkefnisáætlun. Ef að líkum lætur verða drög að verkefnisáætlun rædd á íbúafundi á Bakkafirði seinni hluta sumars eða í haustbyrjun.
Fjallað var um stöðu áforma er varða uppbyggingu veitingaþjónustu og og pöntunarþjónustu í verslunarhúsinu, sem einnig gæti gengt hlutverki nokkurs konar samfélagsmiðstöðvar á Bakkafirði og uppbyggingu og rekstur gistiþjónustu í skólahúsinu. Fyrir skömmu ákvað Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að fylgja eftir vinnu ráðherraskipaðrar nefndar um málefni Bakkafjarðar að styrkja ofangreind áform. Í lok fundarins voru samningar á milli verkefnisins Betri Bakkafjarðar og Þorkels Gíslasonar forstöðumanns þjónustuverkefnisins um nýtingu fjármunanna undirritaðir í verslunarhúsinu.