Fara í efni

Vaxtarrými Norðanáttar

Fréttir

Langanesbyggð vill benda á að Norðanátt leitar nú að þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa og efla sig og sín verkefni.

Norðanátt er regnhlífasamtök nýsköpunar á Norðurlandi sem miðar að því að auka fjárfestingar á svæðinu og skapa kraftmikið umhverfi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem vinna að nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið. 

Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku og er sérhannaður með þarfir þátttakendanna í huga. Teymin sem verða valin í viðskiptahraðalinn hafa því áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.Vaxtarrými fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Rafrænn kynningarfundur fer fram mánudaginn 12. september nk. frá kl. 11:30 - 12:00 þar sem farið verður yfir öll helstu atriði Vaxtarrýmis ásamt því að fólki gefst kostur á að spyrja spurninga.

Hlekkur á zoom: https://us02web.zoom.us/j/83553405875

Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. Nóvember.

Sótt er um á heimasíðu Norðanáttar - www.nordanatt.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. September.

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu Norðanátt koma EIMUR, SSNV, SSNE og ráðgjafafyrirtækið RATA.