Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra 2018
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra fyrir árið 2018. Sækja þarf um rafrænt á heimasíðu Eyþings með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember nk.
Hægt er að fara inn á umsóknarvefinn með því að smella hér.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2018.
Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna.
Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:
| 
 Akureyri  | 
 13.11.2017  | 
 13:00-16:00  | 
 Skrifstofu Eyþings  | 
| 
 Dalvíkurbyggð  | 
 14.11.2017  | 
 10:00-12:00  | 
 Menningarhúsinu Bergi  | 
| 
 Ólafsfjörður  | 
 14.11.2017  | 
 13:00-14:00  | 
 Bókasafni Fjallarbyggðar Ólafsfirði  | 
| 
 Siglufjörður  | 
 14.11.2017  | 
 14:30-16:00  | 
 Ráðhúsinu Siglufirði  | 
| 
 Akureyri  | 
 15.11.2017  | 
 9:00-11:00  | 
 Skrifstofu Eyþings  | 
| 
 Grenivík  | 
 15.11.2017  | 
 14:00-15:00  | 
 Skrifstofu Grýtubakkahrepps  | 
| 
 Þórshöfn  | 
 16.11.2017  | 
 10:30-12:00  | 
 Menntasetrinu á Þórshöfn  | 
| 
 Raufarhöfn  | 
 16.11.2017  | 
 13:00-14:30  | 
 Skrifstofa Norðurþings  | 
| 
 Kópasker  | 
 16.11.2017  | 
 15:30-17:00  | 
 Skrifstofa Norðurþings  | 
| 
 Reykjahlíð  | 
 17.11.2017  | 
 8:30-10:00  | 
 Skrifstofa Skútustaðahrepps  | 
| 
 Laugar  | 
 17.11.2017  | 
 10:30-12:00  | 
 Seigla - miðstöð sköpunar  | 
| 
 Húsavík  | 
 17.11.2017  | 
 13:00-15:00  | 
 AÞ, Garðarsbraut 5 - 2.hæð  | 
Frekari upplýsingar veita:
Ari Páll Pálsson netfang aripall@atthing.is sími 464 0416
Baldvin Valdemarsson á netfang baldvin@afe.is eða í síma 460 5701
Vigdís Rún Jónsdóttir netfang vigdis@eything.is