Fara í efni

Tónleikar á Bakkafirði sunnudaginn 10 maí.

Fréttir

FarNorth býður ekki eingöngu upp á ferðaþjónustu heldur einnig menningarviðburði. Þegar við tókum við rekstri á gistiheimilinu í gamla skólanum í hjarta Bakkafjarðar þá sáum við strax fyrir okkur að við myndum skipuleggja röð menningarviðburða allt árið um kring til að lífga upp á hversdagslífið.
Með þetta í huga erum við spennt að tilkynna þann fyrsta af vonandi mörgum slíkum: Söngkonan Erla Dóra mun syngja nokkur sígild lög við undirleik Alexanders Edelsteins á flygilinn á sunnudaginn kl. 17.00. Takið daginn frá og njótið tónlistar kvöldsins með okkur og þiggið hressingu að dagskránni lokinni. Við lofum að ykkur mun ekki leiðast!
Bakkafjörður
Sunnudagur 10. maí kl. 17:00
Aðgangseyrir: 2.500 kr.