Fara í efni

Tímabundin lokun Norðausturvegar í Vatnadal

Fréttir

Vegna framkvæmda RARIK í Vatnadal á Brekknaheiði verður Norðausturvegur (85) lokaður fyrir umferð í nótt, frá kl. 23:00 fimmtudaginn 17. september til kl. 04:00 föstudaginn 18. september.
Á meðan framkvæmdum stendur verður vegurinn tekinn í sundur á framkvæmdasvæðinu og því ekki hægt að aka um svæðið.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.