Fara í efni

Tillaga að breytingu aðalskipulagi vegna veglínu yfir Brekknaheiði

Fréttir

Eftirfarandi var lagt fyrir 143. fund sveitarstjórnar Langanesbyggðar þann 19. maí s.l. 

Breyting á aðalskipulagi vegna nýrrar veglínu yfir Brekknaheiði

"Lögð var fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027. Viðfangsefni er breytt veglína Norðausturvegar um Brekknaheiði. Breytingin er sett fram á skipulagsuppdrætti með greinargerð dags. 10/05/22. Skipulagið felur í sér breytingu á stofnvegi á þéttbýlisuppdrætti Þórshafnar og sveitarfélagsuppdrætti Langanesbyggðar. Með breytingunni eru þrjú ný efnistökusvæði (N17, N18, N19) skilgreind og settir fram skilmálar um heimild til efnistöku. Jafnframt er gerð breyting á skilmálum um efnistöku í námum N1 og N5.

Fyrirhuguð framkvæmd fellur í B flokk samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Breytt veglína Norðausturvegar um Brekknaheiði fellur undir tölulið 10.08. Jafnframt er fyrirhugað að nýta fleiri en einn efnistökustað og efnismagn fer yfir viðmið samkvæmt lið 2.02. Framkvæmdir sem falla undir flokk B kunna að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og eru tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunar sem mun meta hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Vegagerðin er framkvæmdaraðili og tilkynnir framkvæmdina.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að kynna tillöguna á heimasíðu Langanesbyggðar og sveitarstjórn aðliggjandi sveitarfélaga sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.