Fara í efni

Tilkynning vegna skila á ökutækjum til úrvinnslu – Rafræn skil

Fréttir

Eigandi ökutækis greiðir skilagjald af því. Gjaldið er innheimt með bifreiðagjöldum. Þessi skylda hvílir á eigendum allra ökutækja, einnig þeirra sem eru undanþegin bifreiðagjöldum samkvæmt 4. gr. laga um bifreiðagjöld.

Gjaldskylda fellur niður frá og með upphafi fyrsta gjaldtímabils eftir að greitt hefur verið skilagjald af ökutækinu í full 15 ár og fyrir bifreiðir sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs.

Þegar ökutæki er afskráð og skilað til úrvinnslu er greitt út skilagjald, nú 30.000 kr.

 

Fjársýslan annast greiðsluna fyrir hönd Úrvinnslusjóðs, ef bankareikningur viðtakanda skilagjaldsins er rétt skráður þar ætti skilagjaldið að greiðast út sjálfkrafa innan tveggja daga.

Forsenda þess að skilagjald fáist fyrir bílinn er að honum sé skilað á þar til bæra móttökustöð og afskráður til úrvinnslu. Aflétta þarf veðböndum og standa skil á tryggingaiðgjöldum áður en bílnum er skilað.

Ef um rafbíl eða tvíorkubíl (plugin hybrid) er að ræða þarf að hafa samband við umboðsaðila ökutækisins. Þar fást upplýsingar um hvernig skuli farið með rafhlöðu viðkomandi tegundar af ökutæki.

 

Fyrsta skref er að fara inná island.is https://island.is/flokkur/akstur-og-bifreidar#kaup-og-sala-bifreida og velja þar „Skilavottorð – Umsókn um endurgreiðslu á skilagjaldi ökutækja“ og fara í gegn um eftirfarandi þrep :

  1. Veldu hnappinn „Sækja um“
  2. Veldu það ökutæki sem á að farga
  3. Skrá kílómetrastöðu
  4. Skila þarf ökutækinu á móttökustöð

Ef bankareikningur viðtakanda skilagjaldsins er skráður hjá Fjársýslunni berst greiðsla innan tveggja daga.

ATHUGIÐ að ef viðtakandi greiðslu er með ógreiddar skattkröfur eða ógreidd gjöld fylgja ökutækinu, s.s. bifreiðagjöld, er skilagjaldinu skuldajafnað við þessar kröfur. Tilkynning um skuldajöfnun berst í pósthólfið þitt á island.is. Ef þú átt von á greiðslu sem skilar sér ekki, veita innheimtumenn ríkissjóðs allar upplýsingar um skuldastöðu.

Mikilvægt er að búið sé að skrá ökutækið áður en ökutæki er afhent á Verkstæði Hjartar sem er móttökuaðili Langanesbyggðar.