Tilboð óskast og/eða hugmyndir um nýtingu hluta grunnskólans.
Langanesbyggð auglýsir eftir tilboðum í kaup og/eða eftir hugmyndum um nýtingu hluta grunnskólans fyrir sveitarfélagið.
Um er að ræða syðsta hluta grunnskólans sem er 87,1m2 bygging, byggð árið 1996. Húsið hefur verið nýtt fyrir kennslustofur.
Óskað er eftir verðtilboðum í húsið í því ástandi sem það er til flutnings og skal tilboðsgjafi sjá um að flytja húsið af núverandi undirstöðum. Einnig er óskað eftir hugmyndum um hvort og þá hvernig sveitarfélagið sjálft geti nýtt húsið fyrir eigin starfsemi.
Verðtilboðum og/eða hugmyndum um nýtingu hússins í þágu sveitarfélagsins skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 10 apríl næstkomandi kl. 11:00 . Opnunartími tilboða er kl. 14:00 sama dag. Mat á tilboðum mun liggja fyrir þann 14. apríl.
Myndir: 20260321_090510-3-.jpg 20260321_090543-4-.jpg
Allar upplýsingar veitir Vikar Vífilsson í síma 696 2547. Hann mun einnig sýna hugsanlegum kaupendum og þeim sem hafa hugmyndir um nýtingu þess á vinnutíma milli 08 og 16 alla virka daga.
Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna tilboðum um kaup ef fram kemur góð og frambærileg hugmynd um nýtingu hússins sem gagnast sveitarfélaginu.
Sveitarstjóri