Fara í efni

Þjónustufulltrúi á Þórshöfn

Fréttir

Fjölbreytt starf þjónustufulltrúa hjá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, með starfsstöð á Þórshöfn, er laust til umsóknar.

Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt skrifstofustarf þar sem lögð er áhersla á faglega afgreiðslu mála samkvæmt gildandi lögum og verkferlum.

Starfið snýr að fjölmörgum málaflokkum sem sýslumannsembættið sinnir auk þeirra verkefna sem unnin eru í umboði annarra stofnana. Dæmi um dagleg verkefni eru svörun rafrænna erinda, afgreiðsla ökuskírteina, símsvörun, innheimta opinberra gjalda og móttaka gagna vegna umboðs Sjúkratrygginga, auk aðstoðar við ýmis sérverkefni og afleysingar af ýmsu tagi.

Hæfniskröfur
*Starfsreynsla og þekking sem nýtist vel í starfi
*Hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í teymum
*Hæfni til að tileinka sér sérhæfð tölvukerfi nauðsynleg
*Vandvirkni og ögun í vinnubrögðum og skipulagsfærni
*Mjög gott frumkvæði og þjónustulund
*Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
*Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Með umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli skipta. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Allir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.

Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf í maí.

Embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra leggur áherslu á góða þjónustu og öfluga liðsheild og mjög góðan starfsanda. Tekin hefur verið upp 36 stunda vinnuvika.

Sýslumenn fara með framkvæmdavald ríkisins í héraði og veita margvíslega opinbera þjónustu um land allt, ýmist rafrænt eða á fjölmörgum skrifstofum sýslumanna. Mælt er fyrir um útibú sýslumanns á Þórshöfn í reglugerð nr. 1000/2024, sbr. reglugerð nr. 1151/2014, um umdæmi sýslumanna. Nýr kafli er hafinn í sögu embættanna sem byggir á tækniframförum, stafrænni þróun þjónustulausna og vaxandi áherslu á störf á landsbyggðinni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Svavar Pálsson
Sýslumaður

Tölvupóstur: svavar.palsson@syslumenn.is 
Sími: 458-2600