Þjóðaratkvæði 2026 - kjörstaðir og opnunartímar
Þjóðaratkvæði 2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram 29. ágúst 2026.
Íslenskir ríkisborgarar sem eru með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag hafa rétt til að greiða atkvæði.
Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
Erlendir ríkisborgarar hafa ekki kosningarrétt í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Kjósendur geta séð á heimasíðu Þjóðskrár, skra.is, hvort viðkomandi sé á kjörskrá í sveitarfélaginu og á hvaða kjörstað hann er skráður.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd.
Langanesbyggð er skipt niður í þrjá kjörstaði og fer kosningaréttur kjósenda á kjörstað eftir gömlu hreppaskiptingunni.
Nánari upplýsingar er að finna á www.thjodaratkvaedi.is
Kjörstaðirnir og opnunartímar eru eftirfarandi:
Þórshöfn - Skrifstofa Langanesbyggðar, Langanesvegi 2.
Opnunartími: 10:00 – 18:00.
Bakkafirði - Skrifstofu sveitarfélagsins, Skólagötu 5.
Opnunartími: 10:00 – 15:00.
Svalbarðsskóli
Opnunartími: 10:00 – 15:00.
Kjörfundur getur þó staðið lengur á öllum kjörstöðum samkvæmt 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021 sem er svo hljóðandi:
"Atkvæðagreiðslu má ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Atkvæðagreiðslu má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal þó eigi slíta síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur, sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma, eiga þó rétt á að greiða atkvæði."
Aðsetur yfirkjörstjórnar er á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2
Yfirkjörstjórn Langanesbyggðar:
Árni Davíð Haraldsson, sími: 863-1265
Elfa Benediktsdóttir, sími: 895-8747
Heiðrún Óladóttir, sími: 893-5836