Fara í efni

Þakkir

Fréttir
Myndin er tekið við það tækifæri þegar gefendum og þeim sem unnu að uppsetningu ærslabelgsins var þa…
Myndin er tekið við það tækifæri þegar gefendum og þeim sem unnu að uppsetningu ærslabelgsins var þakkað framlag þeirra til verksins.

Í hófi sem haldið var s.l. mánudag þökkuðu þau Valgerður Sæmundsdóttir formaður UMFL og Þorsteinn Ægir Egilsson varaformaður þeim Þorbjörgu Þorfinnsdóttur og Þóri Jónssyni fyrir framlag þeirra fyrir að koma upp æslabelgnum við íþróttamiðstöðina. Ærslabelgurinn hefur vakið mikla lukku á meðal yngri kynslóðarinnar í Langanesbyggð og ekki er laust við að eldri kynslóðin hafi laumað sér í smá hopp til að reyna á færnina.