Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar - kjörstaðir og opnunartímar

Fréttir

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.
Rétt til að kjósa á kjörfundi hafa allir sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eru á kjörskrá í sveitarfélaginu. Kjósendur geta séð á heimasíðu Þjóðskrár, skra.is, hvort viðkomandi sé á kjörskrá í sveitarfélaginu og á hvaða kjörstað hann er skráður á. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd.

Langanesbyggð er skipt niður í þrjá kjörstaði og fer kosningaréttur kjósenda á kjörstað eftir gömlu hreppaskiptingunni.

Kjörstaðirnir og opnunartímar eru eftirfarandi:

Þórshöfn - Skrifstofa Langanesbyggðar, Langanesvegi 2.
Opnunartími: 10:00 – 18:00.
Bakkafirði - Skrifstofu sveitarfélagsins, Skólagötu 5.
Opnunartími: 10:00 – 15:00.
Svalbarðsskóli
Opnunartími: 10:00 – 15:00.

Kjörfundur getur þó staðið lengur á öllum kjörstöðum samkvæmt 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021 sem er svo hljóðandi:

"Atkvæðagreiðslu má ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Atkvæðagreiðslu má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal þó eigi slíta síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur, sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma, eiga þó rétt á að greiða atkvæði."

Aðsetur yfirkjörstjórnar er á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2 og hefst talning þar fljótlega eftir að kjörstöðum lokar og er talningin öllum opin.

Yfirkjörstjórn Langanesbyggðar:
Oddur Skúlason, sími: 861-2199
Árni Davíð Haraldsson, sími: 863-1265
Sigríður Jóhannesdóttir, sími: 892-0515